Þjónusta við börn og ungmenni á þjónustumiðstöð. Samþætting þjónustu

Sveitarfélög á Íslandi sjá um alla helstu nærþjónustu við íbúa sína sem er einn af lykilþáttum í starfsemi þeirra. Í Reykjavík er það Velferðarsvið sem ber ábyrgð á velferðarþjónustu við íbúa Reykjavíkur og er þjónustumiðstöðvum borgarinnar falið að framkvæma þjónustuna í umboði þess. Viðfangsefni r...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gerður Gústavsdóttir 1960-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11295
Description
Summary:Sveitarfélög á Íslandi sjá um alla helstu nærþjónustu við íbúa sína sem er einn af lykilþáttum í starfsemi þeirra. Í Reykjavík er það Velferðarsvið sem ber ábyrgð á velferðarþjónustu við íbúa Reykjavíkur og er þjónustumiðstöðvum borgarinnar falið að framkvæma þjónustuna í umboði þess. Viðfangsefni rannsóknarinnar er að skoða þjónustu við börn og ungmenni á þjónustumiðstöðum í Reykjavík. Í verkefninu er leitast við að skoða hvernig þjónustu er háttað við börn með samþættingu í huga. Um er að ræða eigindlega raundæmisrannsókn og eru niðurstöður byggðar á viðtölum við 12 einstaklinga auk fyrirliggjandi gagna um þjónustu við börn og ungmenni hjá Reykjavíkurborg. Samþætting þjónustu hefur verið að aukast undanfarin ár með þverfaglegu samstarfi við aðrar stofnanir í hverfum borgarinnar sem vinna með börn. Niðurstöður gefa til kynna að það miði vel að samþætta þá þjónustu sem komin er undir sama þak, það er félagsþjónustu og sérfræðiþjónustu leik- og grunnskóla. Vísbendingar eru um að aukið samstarf við aðrar skipulagsheildir í nærsamfélaginu hafi ekki verið eins mikið og til stóð samkvæmt markmiðum forvarnastefnu og starfsáætlana borgarinnar. Hræringar í pólitík, tíðar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar og tilfærslur á verkefnum flýta ekki fyrir samþættingu þjónustunnar. Municipalities in Iceland offer an array of services to their residents. In the Icelandic Capital of Reykjavik the city´s Welfare Division holds responsibility of rendering welfare services to the inhabitants. These amenities are organized thru the city´s Service Centers. The purpose of this study is to evaluate the services rendered for children and adolescents at the Service Centers in Reykjavik. The study aims to review the quality of service integration in children. The study is a qualitative case study and the results are based upon interviews with twelve individuals in addition to reviewing available data regarding Child and Adolescent Services in Reykjavik. The integration of various specialized services among these Service Centers has been ...