Efnahagsleg staða fjölskyldna á Akureyri og í Reykjavík

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Á undanförnum áratugum hefur sífellt meira farið fyrir umræðu um velferð fjölskyldna og fólk er að átta sig á því að fjölskyldan er mikilvægur hluti í íslensku samfélagi. Það sem minnst hefur borið á í þessari umræðu eru málefni fjölskyl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sóley Magnúsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1128
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Á undanförnum áratugum hefur sífellt meira farið fyrir umræðu um velferð fjölskyldna og fólk er að átta sig á því að fjölskyldan er mikilvægur hluti í íslensku samfélagi. Það sem minnst hefur borið á í þessari umræðu eru málefni fjölskyldna utan Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins. Á Íslandi eru nánast engar samanburðarkannanir á lífskjörum og lífsgæðum fjölskyldna til nema að það eigi við Reykjavík eða höfuðborgarsvæðið í samanburði við landsbyggðina. Slíkar kannanir gefa oft á tíðum ekki raunhæfa mynd af lífsgæðum og lífskjörum vegna þess að á landsbyggðinni eru misstór búsetusvæði. Smærri byggðarlög draga oft úr betri áhrifum stærri byggðarlaga. Í þessari rannsókn var sjónum beint að fjögurra manna fjölskyldum á Akureyri og í Reykjavík. Gerð er samanburðarrannsókn á lífskjörum og lífsgæðum fjölskyldna á búsetusvæðunum tveimur. Við greiningu gagna var beitt samanburðaraðferð. Gögnin voru skoðuð og borin saman meðan á rannsókninni stóð. Markmið rannsóknarinnar er að rannsaka hvort munur er á efnahagslegum lífskjörum og lífsgæðum fjögurra manna fjölskyldna á Akureyri og í Reykjavík. Rannsóknarspurning verkefnisins er: Er munur á efnahagslegri stöðu fjölskyldna á Akureyri og í Reykjavík. Settar voru fram þrjár rannsóknarspurningar sem leiða verkefnið: Hverjar eru helstu forsendur fjárhagslegrar afkomu fjögurra manna fjölskyldu? Eru ráðstöfunartekjur hærri í Reykjavík en á Akureyri? Hvort sveitarfélagið er eftirsóknarverðara í efnahagslegu tilliti? Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru: Ráðstöfunartekjur fjölskyldna í Reykjavík eru nokkuð hærri en á Akureyri. Forsendur fjárhagslegrar afkomu fjögurra manna fjölskyldna er að lágmarki um 280.000 krónur á mánuði í ráðstöfunartekjur. Er þá aðeins miðað við þann lágmarksframfærslukostnað sem ætlað er til að fjölskyldan geti framfleytt sér. Slíkar aðstæður liggja hvað næst mörkum þess að hafa ekki nóg vegna skorts og fátæktar. Í efnahagslegur tilliti þá er Reykjavík eftirsóknarverðari til búsetu. Að lokum ...