Úthýsing

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þetta lokaverkefni við fjármálasvið rekstrar-og viðskiptadeild Háskólans á Akureyri fjallar um úthýsingu. Markmið verkefnisins er tvíþætt annars vegar að gera könnun varðandi þörf á ákveðinni þjónustu í formi úthýsingar fyrir fyrirtæki o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórunn Ósk Haraldsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1125
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Þetta lokaverkefni við fjármálasvið rekstrar-og viðskiptadeild Háskólans á Akureyri fjallar um úthýsingu. Markmið verkefnisins er tvíþætt annars vegar að gera könnun varðandi þörf á ákveðinni þjónustu í formi úthýsingar fyrir fyrirtæki og smærri verktaka. Hins vegar er markmið verkefnisins, að stofna hugsanlega nýtt úthýsingarfyrirtæki með nýrri þjónustu í kjölfar könnunarinnar. Ætlunin er að veita innsýn í úthýsingarþjónustu og upp á hvað hún býður. Unnið er út frá eftirfarandi rannsóknarspurningum. • Hver sér um fjármál fyrirtækisins? • Hefur þú heyrt um úthýsingu? • Gætir þú hugsað þér að nýta slíka þjónustu? Gerð var könnun hjá litlum fyrirtækjum og smáverktökum. Úrtakið voru þrátíu fyrirtæki. Könnunin var lögð fyrir 15.-29. mars 2004 og eru helstu niðurstöður þær að 86.6% aðspurðra sjá sjálfir um fjármál fyrirtækja en 13.4% eru með starfsmann til þess að sjá um þau mál. Þegar spurt var um hvort viðkomandi hafði heyrt um úthýsingu urðu niðurtöður þær að aðeins 10% hafa heyrt um úthýsingu og þar af leiðandi 90% aldrei heyrt hana nefnda. Áhugi stjórnenda á úthýsingu kemur greinilega fram þar sem aðeins 26.7% svarenda gætu ekki hugsað sér að nýta þjónustuna en 73.3% vildu gjarnan nýta sér hana. Lykilorð: Úthýsing, markaðskönnun, fjármál fyrirtækja,Vistun.