Ímynd og aðdráttarafl. CCP sem mögulegur framtíðarvinnustaður nemenda við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands

Flest fyrirtæki leitast eftir því að hafa jákvæða ímynd og vilja laða að sér hæfa umsækjendur. Ritgerð þessi fjallar um hvernig ímynd fyrirtækja getur haft mismunandi áhrif á aðdráttarafl þeirra sem vinnustaðar. Þessi ritgerð er rannsókn á því hversu líklegt nemendur við Háskóla Íslands og Listahásk...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Olga Huld Pétursdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11228
Description
Summary:Flest fyrirtæki leitast eftir því að hafa jákvæða ímynd og vilja laða að sér hæfa umsækjendur. Ritgerð þessi fjallar um hvernig ímynd fyrirtækja getur haft mismunandi áhrif á aðdráttarafl þeirra sem vinnustaðar. Þessi ritgerð er rannsókn á því hversu líklegt nemendur við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands telji að þeir muni sækja um starf hjá fyrirtækinu CCP og hvort að ímynd þeirra á CCP hafi áhrif á ákvörðunina. Áður en rannsóknin var framkvæmd, var farið í að skilgreina ýmis hugtök fræðilega. Þessi hugtök voru meðal annars fyrirtækjaímynd, mannauður, ferli mannauðsstjórnunar og ólíkar kynslóðir. Það er gert svo lesandi átti sig betur á efni rannsóknarinnar. Fyrirtækið CCP var tekið fyrir og fjallað um það út frá starfsmannastefnu, starfsmannamálum og fyrirtækjamenningu. Rannsóknin var megindleg og í formi spurningarkönnunar sem var send út á nemendur Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Í fyrri hluti könnunarinnar voru nemendur spurðir um ímynd þeirra á CCP sem mögulegum vinnustað og í síðari hluta hvort að þeir hefðu áhuga á að sækja um starf hjá CCP og ef ekki, þá af hverju ekki. Rannsóknarspurningin sem leitast var svara við er : Hefur ímynd CCP áhrif á það hvort nemendur Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands hafi áhuga á að sækja um starf hjá CCP að loknu námi? Helstu niðurstöður voru þær að CCP hefur almennt góða ímynd á meðal nemenda skólanna tveggja en flestir nemendur telja þó ólíklegt að þeir muni sækja um starf hjá CCP að loknu námi. Ástæður þess eru þó nokkrar og verður betur fjallað um þær í niðurstöðum.