Námsgildi vettvangsferða leikskólabarna

Verkefnið er lokað Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed-gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri 2011. Rannsóknarspurningin sem ég hef að leiðarljósi við vinnu þessa verkefnis er, hvernig er hægt að nýta sem best nánasta umhverfi leikskólabarna til námsferða og hreyfingar? Ég skoða umhverfisvit...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kristín Sigríður Halldórsdóttir 1969-
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11180
Description
Summary:Verkefnið er lokað Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed-gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri 2011. Rannsóknarspurningin sem ég hef að leiðarljósi við vinnu þessa verkefnis er, hvernig er hægt að nýta sem best nánasta umhverfi leikskólabarna til námsferða og hreyfingar? Ég skoða umhverfisvitund og umhverfisvernd með leikólabörn í huga og hvernig staðið er að umhverfisfræðslu í leikskólum, til dæmis hvernig öðlast leikskólar Grænfánann. Ég skoða einnig hvað hugmyndafræðingarnir John Dewey, Friedrich Fröbel, Howard Gardner og hugmyndasmiðurinn Loris Malaguzzi hafa skrifað um umhverfisfræðslu og hreyfingu leikskólabarna. Ég leitast við að varpa ljósi á hvaða hlutverk leikskólakennari hefur í vettvangsferðum og hvernig staðið skuli að þeim. Ég skoða hvaða áhrif vettvangsferðir hafa á hreyfingu leikskólabarna og að lokum greini ég svolítið frá heimabæ mínum Ísafirði og hvernig hægt er að nýta sér nánast umhverfi leikskólanna þar til vettvangsferða og hreyfingar. Niðurstaða þessa verkefnis er að vettvangsferðir henta mjög vel til hreyfingar og kennslu, og einstaklingsmiðaðrar upplifunar fyrir leikskólabörn á umhverfi sínu. Með því að fræða börn markvisst um umhverfi og umhverfisvernd verða leikskólabörnin sjálfstæðari í hugsun um umhverfið og umhverfisvernd. Í vettvangsferðum fá börnin einnig margbreytilega hreyfingu og hreyfiþjálfun sem eflir líkamlega færni þeirra. This paper is a final thesis for B.Ed-degree at the Teachers-department at University of Akureyri 2011. As a guiding light for my paper I try to answer the following question, how can the closest environment of preschools best be used for educational field-trips and physical training? I explore environmental consciousness and environmental protection regarding preschool-kids and how the teaching takes place in the preschool, for example how a preschool can achieve the Green-flag (Grænfána). I explore what the idealists John Dewey, Friedrich Fröbel, Howard Gardner and Loris Malaguzzi have written about environmental teaching and preschool ...