Bláa lónið : innra markaðsstarf og áhrif þess á ímynd

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið fyrir Bláa Lónið og inniheldur greiningu á innra markaðstarfi hjá fyrirtækinu. Gerð var rannsókn á innri starfsemi fyrirtækisins, þar sem skilgreint er hvernig staðið er að þjónustu við viðskiptavininn, hvernig te...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Karítas Sara Gunnarsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1117
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta er unnið fyrir Bláa Lónið og inniheldur greiningu á innra markaðstarfi hjá fyrirtækinu. Gerð var rannsókn á innri starfsemi fyrirtækisins, þar sem skilgreint er hvernig staðið er að þjónustu við viðskiptavininn, hvernig tekist hefur að gera starfsmenn meðvitaða um markmið og stefnu fyrirtækisins, hvernig starfsmannamálum er háttað, hvernig fyrirtækið skilgreinir starfsemi sína og hvernig samvinna er milli rekstrareininga og hvernig innri samskiptum er háttað. Markmið verkefnisins er að kanna hvort þessir þættir hafi áhrif á ímynd. Eftirfarandi rannsóknarspurningar voru settar fram:  Hvernig er innra markaðstarfi háttað hjá Bláa Lóninu, hvernig er samskiptaferlið innan fyrirtækisins, hvernig er skipulag fyrirtækisins og samskiptum milli rekstrareininga háttað?  Hvernig er starfsmannamálum háttað, þar að segja þjálfun, hvatning, stuðningur við starfsfólk, hve mikið vita starfsmenn um hvaða skilaboð verið er að senda til neytanda í gegnum auglýsingar og hver sé þeirra þáttur í að uppfylla þessi loforð?  Hefur innra markaðstarf áhrif á viðhorf og upplifun starfsmanns á starfi sínu?  Er hægt að nota innra markaðstarf í að styrkja ímynd Bláa Lónsins. Helstu niðurstöður eru?  Upplýsingaflæði er orðið stirt hjá Bláa Lóninu vegna hve ört fyrirtækið hefur vaxið. Til að ráða bót á því þarf að skipuleggja samskiptabrú innan fyrirtækisins, hægt væri að nota innra net fyrirtækisins en til þess verður að tryggja öllum aðgang að því.  Gefið er út fréttabréf til starfsmanna, á því þarf að gera breytingar hvað varðar það efni sem í það er sett. Verði það notað til þekkinga aukningar starfsmanna mun það bæta þann brest sem er á þekkingu starfsmanna á markmiðum og stefnu, þörfum viðskiptavinarsins og á þeirri þekkingu sem fyrirtækið vill að starfsmenn hafi á svæðinu og tilurð lónsins.  Samvinna milli sviða er mikilvægur þáttur í nýtingu auðlinda, til að efla hana þarf að virkja stjórnendur til samvinnu og deila þeim upplýsingum og þekkingu sem ...