Fjárfestingarmöguleikar lífeyrissjóða á Íslandi. Eiga lífeyrissjóðir að fjárfesta í hlutabréfum í Icelandair Group?

Ritgerð þessi fjallar um fjárfestingarmöguleika íslenskra lífeyrissjóða. Eftir fjármálahrunið 2008 á Íslandi fækkaði fjárfestingarmöguleikum fjármálafyrirtækja og einstaklinga mikið. Skortur er á framboði á skuldabréfum og í kjölfar fjármálahrunsins þurrkaðist hlutabréfamarkaður hérlendis nánast upp...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Áslaug Kristjana Árnadóttir 1989-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11121
Description
Summary:Ritgerð þessi fjallar um fjárfestingarmöguleika íslenskra lífeyrissjóða. Eftir fjármálahrunið 2008 á Íslandi fækkaði fjárfestingarmöguleikum fjármálafyrirtækja og einstaklinga mikið. Skortur er á framboði á skuldabréfum og í kjölfar fjármálahrunsins þurrkaðist hlutabréfamarkaður hérlendis nánast upp. Gjaldeyrishöftin sem sett voru á hér á landi 2008 höfðu mikil áhrif vegna þess að í kjölfar þeirra var bannað að kaupa gjaldeyri og flytja erlendis. Fyrir fjárfesta hér á landi þýddi þetta að fjárfestingarkostir voru einungis hérlendis. Í ljósi skorts á fjárfestingarkostum var mikilvægt fyrir lífeyrissjóði að endurskipuleggja fjárfestingarstefnu sína og sníða hana að nýjum lögum og breyttum aðstæðum á markaði. Einnig verður farið yfir starfsemi lífeyrissjóða og ávöxtun þeirra síðustu ár og þeirri áhættu sem fylgir starfsemi þeirra og daglegum rekstri. Að lokum verða fjárfestingar í hlutabréfum hérlendis skoðaðar, og í því samhengi verður litið til Icelandair Group og skoðað hvort að fjárfesting í því félagi sé skynsamleg fyrir lífeyrissjóði. Gengi bréfa í Icelandair Group síðustu ár verður skoðað sem og rekstur og starfsemi félagsins frá árinu 2006.