The acute phase response of Atlantic cod (Gadus morhua L.): Humoral response and changes in the gene expression of immune related genes

Atlandshafsþorskur er efnahagslega mikilvægur fiskur og með minnkun stofnsins síðastliðna áratugi hefur áhugi á þorskeldi aukist hjá þjóðum kringum Norður-Atlandshafið. Í þorskeldi lifa aðeins 10-40% seiðanna af fyrstu 14 vikurnar. Margar ástæður eru fyrir lágri lifun hjá lirfunum, ein ástæðan eru s...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Sigríður Steinunn Auðunsdóttir 1984-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:English
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/11063
Description
Summary:Atlandshafsþorskur er efnahagslega mikilvægur fiskur og með minnkun stofnsins síðastliðna áratugi hefur áhugi á þorskeldi aukist hjá þjóðum kringum Norður-Atlandshafið. Í þorskeldi lifa aðeins 10-40% seiðanna af fyrstu 14 vikurnar. Margar ástæður eru fyrir lágri lifun hjá lirfunum, ein ástæðan eru sýkingar. Þess vegna eru rannsóknir á ónæmiskerfi og ónæmisvörnum þorsks mikilvægar. Bráðasvar er svar líkamans við áverkum, meiðslum og sýkingum. Það felur í sér seyti bráðapróteina eins og pentraxína, ensímtálma, járnbindi- og komplement þátta. Tvær aðal gerðir pentraxína eru Serum amyloid P (SAP) og C-reactive prótín (CRP). Aðal munur milli þessara tveggja prótína er að CRP efur kalsíum háða sækni í fosfórkólín en SAP ekki. Í þorski hefur tveimur gerðum af CRP pentraxínum verðið lýst, CRP-PI og CRP-PII. N-enda amínósýru raðgreining hefur sýnt að CRP-PI er líkara SAP en CRP og að CRP-PII samsvarar CRP hjá öðrum fisktegundum en sýnir mikinn breytileika í gerð á milli einstaklinga. Rannsóknir á hlutverki pentraxína í bráðasvari hjá fiskum eru ennþá fáar. Bráðasvar var framkallað í þorski með því að sprauta terpentínu í vöðva en aðferðin er þekkt aðferð til að framkalla bráðasvar. Blóði var safnað fyrir sermismælingar og sýnum úr lifur, nýrum og milta var safnað fyrir mælingar á genatjáningu. Magn CRP-PI, CRP-PII, kortisóls, IgM, og heildar próteinmagn voru mæld, auk þess sem virkni náttúrulegra mótefna og ensímtálma var mæld í sermi yfir 7 daga tímabil Niðurstöður sýndu að terpentínan jók magn kortisóls í sermi sem náði hámarki 72 klst eftir sprautun. Magn IgM í sermi var marktækt meira 24 klst eftir sprautun hjá terpentínuhóp en hjá viðmiðunarhóp en 168 klst eftir sprautun var magn í terpentínuhóp marktækt lægra en hjá viðmiðunarhóp. Niðurstöður sermismælinga benda því til að kortisól gæti haft bælandi áhrif á aðra ónæmisþætti í sermi og að pentraxín séu ekki dæmigerð bráðaprótein í þorski. Tjáning CRP-PI, CRP-PII, C3, ApoLP A-I, IL-1β, transferrin, cathelicdin og hepcidin genanna var mæld í nýrum og milta yfir 7 daga ...