Glímt við þjóðveginn, áhrif hjáleiðar um Selfoss

Eftirfarandi rannsókn er á sviði umferðar og skipulags og er athugun á fyrirhuguðum flutningi þjóðvegar 1 út fyrir Selfoss. Niðurstöður erlendra rannsókna eru notaðar til að meta áhrif af gerð hjáleiðar um Selfoss á sett markmið um bætt umferðaröryggi og aukna umferðarrýmd, auk þess að skoða áhrif h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hrafnhildur Brynjólfsdóttir 1970-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10927
Description
Summary:Eftirfarandi rannsókn er á sviði umferðar og skipulags og er athugun á fyrirhuguðum flutningi þjóðvegar 1 út fyrir Selfoss. Niðurstöður erlendra rannsókna eru notaðar til að meta áhrif af gerð hjáleiðar um Selfoss á sett markmið um bætt umferðaröryggi og aukna umferðarrýmd, auk þess að skoða áhrif hjáleiðarinnar á landnotkun og samfélag á Selfossi og í Flóahreppi. Leitað er upplýsinga um væntingar heimamanna og opinberra aðila um áhrif hjáleiðarinnar og hvort líklegt sé að þeim væntingum verði náð með gerð hjáleiðarinnar. Tilgangur - Rannsóknin miðar að því að auka skilning á áhrifum nýrra samgöngutenginga og spá fyrir um áhrif hjáleiðarinnar við Selfoss sérstaklega og almennt um áhrif hjáleiða við íslenskar aðstæður. Nálgun - Rannsóknin byggir á rýni fræðilegra heimilda og undirbúningsgagna um hjáleið um Selfoss auk viðtala við hagsmunaaðila, svo sem Vegagerðina, sveitarfélögin sem eiga land að hjáleiðinni og aðila í rekstri á Selfossi til að leita upplýsinga um væntingar mismunandi aðila um áhrif hjáleiðarinnar. Niðurstöður - Niðurstöður rannsóknarinnar eru að hjáleið um Selfoss muni auka umferðarrýmd á þjóðvegi 1, draga tímabundið úr umferð á Austurvegi og hafa á heildina litið takmörkuð áhrif á umferðaröryggi. Hjáleiðin hefur haft áhrif á skipulag landnotkunar á Selfossi og í Flóahreppi og verið hvatinn að því að nú er skipulagt þéttbýli með verslunar- og þjónustukjarna beggja vegna við hjáleiðina sem er líklegt að hafi neikvæð áhrif á núverandi miðbæ Selfoss. Ekkert umferðaröryggis- eða arðsemismat hefur verið unnið fyrir framkvæmdina. Í hönnunarforsendum er ekki tekið tillit til þess að hjáleiðin muni í framtíðinni liggja um þéttbýli og pólitísk ákvörðun um tvöföldun Suðurlandsvegar veldur því að hjáleiðin er áætluð tvöföld í framtíð þótt umferð gefi ekki tilefni til þess. Þegar á heildina er litið eru fjölmörg atriði sem betur hefðu mátt fara í undirbúningi að gerð hjáleiðar um Selfoss. Lykilorð: hjáleið, samgöngur, landnotkun, þéttbýli, þjóðvegur. This research project is in the field of Urban Planning ...