Linear optimization model that maximizes the value of pork products

Sjávarútvegurinn á Íslandi hefur nýtt sér aðferðir aðgerðagreiningar, bestun og líkanagerð, með miklum árangri. Því hefur sjávarútvegurinn náð langt hvað varðar nýtingu á afurðum og þróun á reikniforritum sem aðstoða með ákvarðanatöku. Landbúnaðurinn hins vegar hefur ekki nýtt sér þessar aðferðir í...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Kamilla Reynisdóttir 1984-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10909
Description
Summary:Sjávarútvegurinn á Íslandi hefur nýtt sér aðferðir aðgerðagreiningar, bestun og líkanagerð, með miklum árangri. Því hefur sjávarútvegurinn náð langt hvað varðar nýtingu á afurðum og þróun á reikniforritum sem aðstoða með ákvarðanatöku. Landbúnaðurinn hins vegar hefur ekki nýtt sér þessar aðferðir í eins miklum mæli. Mjög líklega er það vegna þess að sjávarútvegurinn hefur vegið meira í íslensku atvinnulífi, hvað varðar verga landsframleiðslu og er ein mikilvægasta útflutningsgrein landsins. Það er þó engu að síður jafn mikilvægt fyrir landbúnaðinn að nýta sér þessar aðferðir. Neytendur gera sífellt meiri kröfur til framleiðanda um lægra vöruverð en á sama tíma, um meiri gæði. Það er því mikilvægt að nýta sér áðurnefndar aðferðir til að ná fram betri nýtingu í framleiðslu ásamt því að auka arðsemi á því hráefni sem er til umráða hverju sinni. Í þessu verkefni verður leitast eftir að hámarka afurðaverðmæti svínaafurða, með því að þróa reiknilíkan sem birtir hagkvæmustu framleiðsluáætlunina hverju sinni. Líkanið er hannað á þann hátt að það er hægt að nýta það fyrir hvaða kjöttegund sem er og jafnvel annarskonar hráefni úr matvælaiðnaðinum, með því að nota önnur gögn. Prófanir á því verða hinsvegar ekki gerðar í þessu verkefni. Línulegt bestunarlíkan verður kynnt ásamt helstu niðurstöðum af samanburði við gögn fengin frá Sláturfélagi Suðurlands. Niðurstöður gefa til kynna að línulegt bestunarlíkan hentar vel fyrir áætlanagerð í framleiðslu sem þessari. Líkanið gefur hærri tekjur með framleiðslu á sama magni og var í raun. Með því að beita næmigreiningu á ákveðna þætti í líkaninu má sjá hvaða vörur er mikilvægt að leggja áherslu á í því skyni að hámarka hagnað. The fishing industry in Iceland has applied methods of engineering, such as optimization research and mathematical modeling, into the fish processing plants with a great success. The fishing industry have reached a great progress in terms of utilizing available raw material and developing mathematical models that assist with complex decision making within ...