BIM adoption in Iceland and its relation to lean construction

Fyrirtæki og stofnanir innan íslenska byggingariðnaðarins hafa sýnt upplýsingalíkönum mannvirkja áhuga á undanförnum árum, jafnvel innleitt það og beitt við nokkur verkefni. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvar íslenski byggingariðnaðurinn stendur við innleiðingu upplýsingalíkana mannvirkj...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Ingibjörg Birna Kjartansdóttir 1979-
Other Authors: Háskólinn í Reykjavík
Format: Thesis
Language:English
Published: 2012
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10907
Description
Summary:Fyrirtæki og stofnanir innan íslenska byggingariðnaðarins hafa sýnt upplýsingalíkönum mannvirkja áhuga á undanförnum árum, jafnvel innleitt það og beitt við nokkur verkefni. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvar íslenski byggingariðnaðurinn stendur við innleiðingu upplýsingalíkana mannvirkja eða eins og það nefnist á ensku, Building Information Modelling, skammstafað BIM. Skammstöfunin BIM hefur fengið alþjóðlega útbreiðslu og verður því notuð í rannsókn þessari. Innleiðingarferli opinberra stofnanna á Íslandi og í nágrannalöndum verða skoðuð sem og Bandaríkjanna og þau borin saman og bil tilgreind. Niðurstöðurnar gefa í skyn að bil sé í innleiðingarferlinu á Íslandi, þar sem engar reglugerðir um notkun BIM eru í gildi. Opinberar stofnanir geta því aðeins sóst eftir að BIM sé notað, en ekki krafist þess. Framkvæmd var könnun innan fyrirtækja og stofnanna innan íslenska byggingar-iðnaðarins til að varpa ljósi á hverjir notast við BIM og að hvaða marki. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á samvirkni milli lean construction og BIM. Í tengslum við það verður einnig kannað hvort íslenskur byggingariðnaður sé að tileinka sér aðferðir lean construction og þá að hvaða marki. Af þátttakendum segjast 40% nota BIM, mest arkitektar og verkfræðingar. Niður-stöðurnar gefa í skyn að þroskastig BIM á Íslandi liggur á milli þroskastigs 1 og 2, þar sem enginn verktaki notast við BIM og aðeins eitt fyrirtæki segist notast lean construction. Innleiðendur BIM á Íslandi sem og verkkaupar almennt, gætu hugsanlega nýtt sér niðurstöður rannsóknar þessarar við ákvörðun á innleiðingu BIM sem og næstu skrefum ferlisins. Niðurstöðurnar munu vonandi gefa skýrari mynd á stöðuna hérlendis og hvort eitthvað vantar uppá við innleiðingaferli BIM sem hefur það að leiðarljósi að stuðla að bættu ferli mannvirkjagerðar.