Áhrif fyrirtækja- og þjóðmenningar

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefnið er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í rekstar – og viðskiptadeild við Háskólann á Akureyri. Í því er fjallað um þjóðmenningu og fyrirtækjamenningu og tengslin á milli þessara tveggja menninga. Einnig er fjallað um íslenska þjóð - o...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Margrét Víkingsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1090
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefnið er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í rekstar – og viðskiptadeild við Háskólann á Akureyri. Í því er fjallað um þjóðmenningu og fyrirtækjamenningu og tengslin á milli þessara tveggja menninga. Einnig er fjallað um íslenska þjóð - og fyrirtækjamenningu og tengsl hennar við útrás íslenskra fyrirtækja. Í upphafi voru settar fram eftirfarandi rannsóknarspurningar:  Hvað er þjóðmenning og skiptir hún einhverju máli?  Er til fyrirtækjamenning og skiptir hún einhverju máli?  Eru tengsl á milli þjóðmenningar og fyrirtækjamenningar?  Er til íslensk þjóðmenning og fyrirtækjamenning?  Eru menning og fyrirtækjamenning á íslandi á einhvern hátt hamlandi við útrás íslenskra fyrirtækja? Leitast var við að svara þessum spurningum með fræðilegri umfjöllun úr ýmsum heimildum svo sem bókum og rannsóknum, ásamt því að tekin voru viðtöl við fólk úr íslensku atvinnulífi. Hver þjóð samanstendur af einstaklingum með svipuð gildi. Þessi gildi eru ólík á milli landa og því er til sérstök menning sem einkennir hverja þjóð. Hvert fyrirtæki hefur einnig sína sérstöku menningu sem tekur nokkuð mið af þjóðmenningu landsins. Einkenni íslenskrar þjóðmenningar og fyrirtækjamenningar eru margvísleg en helst er hægt að nefna áhrif stöðugrar baráttu við náttúruna, sem veldur sveigjanleika og bjartsýni, sem og sú tilhneiging Íslendinga að viðhalda jafnvægi í samskiptum sín á milli sem og í þjóðfélaginu. Skammtímahugsun Íslendinga getur haft hamlandi áhrif þegar kemur að útrás til annarra landa Lykilorð:  Þjóðmenning  Fyrirtækjamenning  Tengslin á milli þjóðmenningar og fyrirtækjamenningar  Ísland  Útrás