Íslenskir stjórnendur : einkenni, stjórnunaraðferðir og árangur

Ritrýnd grein Í þessari grein er varpað ljósi á íslenska stjórnendur, stjórnunaraðferðir þeirra og sérkenni. Greinin kannar einnig hvort breytingar hafi orðið á stjórnunaraðferðum á árunum 2004‐2007. Rannsóknin byggir á rafrænni spurningalistakönnun þar sem stjórnendur í íslenskum fyrirtækjum af ólí...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Ingi Rúnar Eðvarðsson 1958-, Guðmundur Kristján Óskarsson 1972-
Other Authors: Háskólinn á Bifröst
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2009
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10895
Description
Summary:Ritrýnd grein Í þessari grein er varpað ljósi á íslenska stjórnendur, stjórnunaraðferðir þeirra og sérkenni. Greinin kannar einnig hvort breytingar hafi orðið á stjórnunaraðferðum á árunum 2004‐2007. Rannsóknin byggir á rafrænni spurningalistakönnun þar sem stjórnendur í íslenskum fyrirtækjum af ólíkri stærð voru spurðir um stjórnun og svörun var 46%. Litlar breytingar komu fram milli kannana 2004 og 2007, nema hvað varðar stjórnunarstíl og kyn, liðsstarf og rekstrarárangur. Af öðrum niðurstöðum má nefna að íslenskir stjórnendur beita lýðræðislegum stjórnunaraðferðum og blanda saman ólíkum aðferðum. Konur beita frekar hvetjandi og veitandi stjórnun en karlar velja flestir felandi stjórnun. Meirihluti fyrirtækja er með liðsstarf og það er algengast í stærri fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning fyrirtækja á landinu og starfsgrein fyrirtækja hafði óveruleg áhrif á stjórnun. Stærð fyrirtækja og menntun stjórnenda hafði hins vegar nokkur áhrif á stjórnun. Liðlega sjö af tíu fyrirtækjum voru rekin með hagnaði 2006. Engin sjáanleg tengsl voru á milli stjórnunaraðferða og rekstrarárangurs. Helsta skýring þess er að mikill meirihluti fyrirtækja skilaði hagnaði. This article investigates Icelandic managers, their management methods and characteristics. The article also asks whether there were changes in management methods in Iceland during the years 2004‐2007. The study is based on an electronic survey where managers in Icelandic companies of varying size were asked about management. The response rate was 46%. There are few apparent changes between the 2004 and 2007 surveys, except regarding management style and gender and teamwork and company performance. Among other results are that Icelandic managers use democratic management methods and combine differing methods. Women tend to use supporting and coaching techniques while most men choose delegating techniques. The majority of companies have teams and this is most common in larger companies in the Reykjavík area. The geographical location of companies and ...