Aldur og vöxtur sjóbleikjustofns Hvítár í Borgarfirði

Bleikja Salvelinus alpinus telst til ferskvatnsfiska og er ein af þremur villtum laxfiskum sem finnast hér á landi. Göngur eru algengar hjá bleikju og bleikja sem gengur í sjó kallast sjóbleikja. Sjóbleikja í Hvítá í Borgarfirði hefur flókinn lífsferil. Hún gengur til sjávar í Borgarfjörð, hefur vet...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Iðunn Hauksdóttir 1988-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10838
Description
Summary:Bleikja Salvelinus alpinus telst til ferskvatnsfiska og er ein af þremur villtum laxfiskum sem finnast hér á landi. Göngur eru algengar hjá bleikju og bleikja sem gengur í sjó kallast sjóbleikja. Sjóbleikja í Hvítá í Borgarfirði hefur flókinn lífsferil. Hún gengur til sjávar í Borgarfjörð, hefur vetursetu neðarlega í Hvítá eða þverám hennar og hrygnir í lindám sem renna ofarlega í Hvítá. Seiði yfirgefa lindár strax eftir klak. Samkvæmt sýnaúrtaki þessarar rannsóknar samanstendur aldurssamsetning sjóbleikjustofnsins af bleikju eins til sex ára og eru flestar um þriggja ára aldur. Meðalaldur við kynþroska er 3,51 ár og virðist ekki hafa breyst frá árunum 1987-1999 til 2007-2010. Hlutfall hænga á móti hrygnum var mun hærra á árunum 2007-2010 í sýnum sem voru að meirihluta tekin frá hrygningarstöðvum en hængar koma þangað fyrr og dvelja yfir lengra tímabil en hrygnur. Einnig var hlutfall geldbleikju á móti hrygningarbleikju hærra á árunum 1987-1999 í sýnum sem voru tekin í sjó í Borgarfirði og hlutfall hrygningarbleikju hærra á tímabilinu 2007-2010 í sýnum sem voru tekin í Hvítá. Niðurstöður sýndu að vöxtur stofnsins virtist ekki hafa breyst mikið frá árunum 1987-1999 til 2007-2010. Bakreiknuð lengd milli tímabilanna var svipuð hjá bleikjum frá eins til þriggja ára en eftir það var vöxtur bleikju frá 2007-2010 betri en á tímabilinu 1988 til 1989 tímabilinu og kom fram marktækur munur á vexti fjögurra ára bleikju. Sjóbleikjan gengur út í ósasvæði Hvítár í Borgarfirði og getur bleikjan valið úr svæðum með mismunandi seltustig. Þetta gerir það að verkum að hún getur gengið snemma á æviskeiði til sjávar og í þessari rannsókn kom í ljós að sjóbleikjan er eins til tveggja ára við fyrstu sjógöngu. Meðalaldur við fyrstu sjógöngu var 1,62 ár og kom ekki fram marktækur munur á fyrstu sjógöngu á milli tímabila. Samkvæmt niðurstöðum virðist ástand stofnsins ekki hafa breyst frá árunum 1987-1999 til 2007-2010 en ef litið er á veiðitölur sést að bleikju hefur fækkað verulega síðastliðin ár. Fækkun gæti stafað af aukinni samkeppni ...