Skipulag, framkvæmdir og rask í Úlfarsárdal

Verkefnið fjallar um rask, skipulag og framkvæmdir í Úlfarsárdal, Reykjavík. Markmiðið er að athuga hvort að eitthvert rask og þá hvernig rask verður við skipulagðar framkvæmdir á svæðinu. Einnig verður athugað hvernig mannvirki eru aðlagaðar að landslagi svæðisins. Til að finna út hvaða rask hefur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Helgadóttir 1986-
Other Authors: Landbúnaðarháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10836
Description
Summary:Verkefnið fjallar um rask, skipulag og framkvæmdir í Úlfarsárdal, Reykjavík. Markmiðið er að athuga hvort að eitthvert rask og þá hvernig rask verður við skipulagðar framkvæmdir á svæðinu. Einnig verður athugað hvernig mannvirki eru aðlagaðar að landslagi svæðisins. Til að finna út hvaða rask hefur áhrif á svæðið voru skoðaðar fræðigreinar og bækur sem fjall um rask og metið út frá þeim upplýsingum hvort og hverskonar rask svæðið verður fyrir. Borið var saman deiliskipulag af svæðinu og svo hvernig mannvirkin eru í raun. Aðlögun að landi var athuguð með því að gera sneiðingar í gegnum svæðið og sýna legu landsins fyrir og eftir framkvæmdir. Einnig voru teknar myndir og sett inn á þær fyrirhuguð mannvirki og borið saman við ásýnd svæðisins fyrir gerð mannvirkjanna. Niðurstöðurnar sýna að raskið sem verður á svæðinu er eyðing og sundrun búsvæða. Athugun sýndi að framkvæmdir eru ekki í samræmi við skipulag og mannvirki mættu vera betur aðlöguð að landslagi.