Almenningssamgöngur á Akureyri

Verkefnið er lokað Þetta lokaverkefni við Stjórnunarsvið Rekstrar- og viðskiptadeild Háskólans á Akureyri er unnið í samráði við Akureyrarbæ og fjallar um almenningssamgöngur á Akureyri. Markmiðið með verkefninu er að skoða stöðu almenningssamgangna á Akureyri og skoða viðhorf til Strætisvagna Akure...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Hafþór Einarsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1079
Description
Summary:Verkefnið er lokað Þetta lokaverkefni við Stjórnunarsvið Rekstrar- og viðskiptadeild Háskólans á Akureyri er unnið í samráði við Akureyrarbæ og fjallar um almenningssamgöngur á Akureyri. Markmiðið með verkefninu er að skoða stöðu almenningssamgangna á Akureyri og skoða viðhorf til Strætisvagna Akureyrar. Ætlunin er að veita innsýn í þá flutningsstarfsemi sem Akureyrarbær býður bæjarbúum. Einnig er reynt að sýna fram á mikilvægi almenningssamgangna fyrir þá sem eru á Akureyri. Aflað var gagna úr rekstri SVA og Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu. Unnið er útfrá eftirfarandi rannsóknarspurningum: Er vilji meðal grunn - og framhaldsskólanema til að viðhalda og nýta almenningssamgangnakerfið á Akureyri? Er rekstrarumhverfi SVA það gott að hægt sé að fullnægja þörfum allra viðskiptavina? Er búið að fara nægjanlega vel yfir alla möguleika á rekstri almenningssamgangna á Akureyri? Gerð var könnun hjá nemendum í grunn- og framhaldsskólunum á Akureyri en þeir eru álitnir helstu notendur SVA. Úrtakið var 1000 nemendur en 809 svör bárust til baka en könnunin var lögð fyrir 7.- 11. apríl 2003. Þar eru helstu niðurstöðurnar að 45,4% grunn- og framhaldsskólanema sögðust ekki muna eftir strætó þegar að hugað var að ferðum innanbæjar. Þó 86,6% þátttakenda teldu að almenningssamgöngur væru nauðsynlegar eru einungis 39,9% sem nýta sér þjónustu SVA. Helstu niðurstöður verkefnisins tengjast bæði rekstri SVA og því viðhorfi sem könnunin leiddi í ljós gagnvart almenningssamgöngum. Rekstur SVA virðist vera stefnulaus og ómarkviss, lítið er gert til þess að laða að og halda í viðskiptavinina. Ekki er stefnt á að þjóna neinum ákveðnum hópi fólks heldur er þjónustan lágmarksþjónusta við heildina þar sem að reynt er að þjóna öllum fyrir sem allra minnst framlag, sem er ákveðið af bæjarstjórninni. Hægt er að gera margskonar breytingar á rekstri SVA en breytingarnar á rekstrarforminu munu ekki hafa raunveruleg áhrif á farþegafjöldann þar sem hann byggir á óskum og væntingum viðskiptavinanna. Með því að markaðssetja almenningssamgöngur sem ...