Umönnun ungra barna í Reykjavík. Hluti II. Rannsókn RBF fyrir Leikskólasvið Reykjavíkurborgar 2009-2010

Leikskólasvið Reykjavíkurborgar fól Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd (RBF) við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands að gera rannsókn á hvernig reykvískir foreldrar haga umönnun barna sinna frá því að fæðingarorlofi sleppir, ástæðum fyrir ólíku vali foreldra á þjónustu fyrir börn sín og h...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Report
Language:Icelandic
Published: 2010
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10760
Description
Summary:Leikskólasvið Reykjavíkurborgar fól Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd (RBF) við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands að gera rannsókn á hvernig reykvískir foreldrar haga umönnun barna sinna frá því að fæðingarorlofi sleppir, ástæðum fyrir ólíku vali foreldra á þjónustu fyrir börn sín og hvernig foreldrar nýta og upplifa tímabundna þjónustutryggingu. Rafræn spurningakönnun var lögð fyrir 878 foreldra sem sótt höfðu um leikskóla eða þjónustutryggingu fyrir börn sín á tímabilinu 1. september 2008 til 1. mars 2009. Könnunin fór fram í október - nóvember 2009. Svarhlutfall var 59,7%. Foreldrar og ættingjar eru helstu umönnunaraðilar yngstu barnanna en eftir því sem þau verða eldri þá koma fleiri að umönnun þeirra og á aldrinum 10-17 mánaða verða dagforeldrar mjög áberandi. Eftir því sem börnin verða eldri dregur úr hlutdeild ofangreindra aðila og leikskólinn verður meira áberandi. Við tveggja ára aldur eru flest börnin á leikskóla. Niðurstöður sýna að mæður leika mun stærra hlutverk en feður í daglegri umönnun barnanna. 159 þátttakendur (30%) höfðu nýtt sér þjónustutryggingu. Algengasta ástæða fyrir notkun þjónustutryggingar var að barnið hefði ekki fengið leikskólapláss (61%). 86,4% sögðust ánægð eða mjög ánægð með hvernig þjónustutrygging hefði mætt þörfum svarenda. Tæplega 90% þátttakenda í rannsókninni töldu þjónustutryggingu vera valkost sem ætti að vera áfram í boði hjá Reykjavíkurborg, 88% töldu að þjónustutrygging auðveldi foreldrum að brúa bilið milli fæðingarorlofs og dagvistar og tæplega 73% að hún yki líkur á að einhver nákominn fjölskyldunni annist barnið. Þá voru 85% svarenda sammála því að foreldrar eigi að geta notað þjónustutryggingu til að greiða ættingjum og vinum fyrir að annast um barnið. Meirihluti svarenda, eða rúmlega 63%, töldu upphæðina of lága. Meirihluti foreldra taldi að þjónustutrygging yki möguleika foreldra á að samþætta umönnun barns og atvinnuþátttöku, rúmlega 70% voru sammála því að þjónustutrygging yki möguleika mæðra á samþættingu borið saman við tæplega 60% sem töldu ...