Samhæft árangursmat í Menntaskólanum á Akureyri

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lykilorð: Opinber Stjórnsýsla, Framhaldsskólar, Samhæft árangursmat, Stefnumótun, Sjálfsmat Markmið verkefnisins er að kanna notkunarmöguleika Samhæfðs árangursmats í opinberri stjórnsýslu og skoða hvaða ávinningi þetta stjórntæki getur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Elvar Knútur Valsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2003
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1067
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Lykilorð: Opinber Stjórnsýsla, Framhaldsskólar, Samhæft árangursmat, Stefnumótun, Sjálfsmat Markmið verkefnisins er að kanna notkunarmöguleika Samhæfðs árangursmats í opinberri stjórnsýslu og skoða hvaða ávinningi þetta stjórntæki getur skilað. Í verkefninu er tekið mið af aðstæðum framhaldsskóla og dæmi tekið frá Menntaskólanum á Akureyri. Kannað verður hvernig líkanið getur nýst skólanum í að verða við þeim kröfum sem til hans eru gerðar varðandi sjálfsmat og aðra tengda þætti. Umfjöllunin um Samhæft árangursmat er tengd þeim aðstæðum sem opinberar stofnanir búa við, þá sérstaklega framhaldsskólar, og skoðað er hvernig skólarnir gætu nýtt sér aðferðafræðina. Samanburður á þeim aðgerðum sem tíðkast hjá skólastofnunum um sjálfsmat uppfyllir í raun þær kröfur sem til starfseminnar eru gerðar en samt sem áður getur Samhæft árangursmat bætt um betur og hjálpað til við stjórnun skólans. Útgangspunktur Samhæfðs árangursmats er um margt ólíkur þeirri aðferðafræði sem notast við sjálfsmat í Menntaskólanum á Akureyri og verður að teljast að notkun líkansins muni reynast góð viðbót við núverandi aðferðir. Ljóst er að hin hefðbundna útfærsla Samhæfðs árangursmats þarfnast breytinga þegar henni er beitt á opinberar stofnanir. Þessi munur ræðst aðallega af þeim rekstraraðstæðum sem þessar stofnanir búa við en oft ákvarðast þær af ákveðnum lögum um starfsemina. Einnig er hlutverk þessara stofnana samfélagslegt og árangur í rekstri því ekki miðaður við fjárhagslega frammistöðu heldur frekar það víðtæka hlutverk sem stofnuninni er sett innan samfélagsins. Hlutverk framhaldsskóla er samfélagslegt og miðast við að þjónusta þá viðskiptavini sem tengjast skólunum, hvort sem um nemendur, hið opinbera eða háskóla er að ræða. Samhæft árangursmat er tiltölulega nýtt af nálinni og eru fyrirtæki og stofnanir í auknum mæli að kynna sér og nýta möguleika þess. Líkanið er hefur þá eiginleika að vera sérsniðið að hverju því fyrirtæki eða stofnum sem ákveður að taka það upp og ...