Sjálfsvirðing unglinga : tengsl við íþróttir, tómstundir og námsárangur

Rannsóknir tengdar sjálfsvirðingu einstaklinga hafa verið áberandi síðustu áratugi. Sjálfsvirðing unglinga hefur töluvert verið til rannsóknar og þá oft beinst að tengslum við líðan og hegðunarvandkvæði. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða tengsl sjálfsvirðingar við líðan, hegðun og heildarva...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Jóhanna Bergsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2007
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1035
Description
Summary:Rannsóknir tengdar sjálfsvirðingu einstaklinga hafa verið áberandi síðustu áratugi. Sjálfsvirðing unglinga hefur töluvert verið til rannsóknar og þá oft beinst að tengslum við líðan og hegðunarvandkvæði. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða tengsl sjálfsvirðingar við líðan, hegðun og heildarvanda auk tengsla sjálfsvirðingar við námsframmistöðu og íþrótta- og tómstundaiðkun. Til þess var notaður sjálfsmatkvarði Rosenberg til að mæla sjálfsvirðingu þátttakenda og YSR listi Achenbach til að mæla líðan, hegðun og heildarvanda þeirra, námsframmistöðu auk íþrótta- og tómstundaiðkun. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 197 tíundu bekkingar í fimm grunnskólum á Akureyri, 98 stúlkur og 99 drengir. Drengirnir (M = 22,85; sf = 5,47) mældust almennt með hærri sjálfsvirðingu en stúlkurnar (M = 18,66; sf = 6,47), F(1, 195) = 16, 479, p>0,001. Þátttakendur með háa sjálfsvirðingu (M = 48,35; sf = 8,21) reyndust líða almennt betur og mældust með minni hegðunarvandkvæði og heildarvanda en þeir sem mældust með lága sjálfsvirðingu (M = 58,95; sf = 10,64). Niðurstöður rannsóknarinnar benda því til þess að sjálfsvirðing unglinga í tíunda bekk í grunnskólum á Akureyri sé mikilvægari en kynferði þegar kemur að þáttum tengdum hegðun og líðan, mati á námsárangri og tómstundaþátttöku.