Um hæfi nefndarmanna í skilanefndum og stjórnarmanna í slitastjórnum

Verkefnið er lokað Haustið 2008 hrundi íslenska fjármálakerfið. Afleiðingar hrunsins voru m.a. þær að bankarnir þrír; Glitnir hf., Kaupþing hf. og Landsbanki Íslands urðu gjaldþrota. Í kjölfar hrunsins tóku gildi lög nr. 128/2008, svonefnd neyðarlög. Neyðarlögin heimiluðu Fjármálaeftirlitinu að skip...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Árni Sigurgeirsson
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10287
Description
Summary:Verkefnið er lokað Haustið 2008 hrundi íslenska fjármálakerfið. Afleiðingar hrunsins voru m.a. þær að bankarnir þrír; Glitnir hf., Kaupþing hf. og Landsbanki Íslands urðu gjaldþrota. Í kjölfar hrunsins tóku gildi lög nr. 128/2008, svonefnd neyðarlög. Neyðarlögin heimiluðu Fjármálaeftirlitinu að skipa bönkunum þremur skilanefndir sem fóru með stjórn bankanna. Slitameðferð hófst á bönkunum þegar þeim voru skipaðar slitastjórnir. Mikil umræða hófst m.a. um hæfi skilanefndar og slitastjórnarmanna og hvaða hæfisreglur skyldu gilda við mat á hæfi þeirra til meðferðar máls. Álitaefni hvort skilanefndir væru stjórnvöld eða stjórnsýslunefndir og þar með hvort hæfisreglur stjórnsýslulaga ættu að gilda við mat á hæfi skilanefndarmanna. Einnig var álitaefni hvort skilanefndirnar væru einkaréttareðlis, enda störfuðu þær eftir heimildum stjórnar skv. hlutafélagalögum nr. 2/1995. Gildistaka laga nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002, hafði áhrif á stöðu skilanefnda. Samkvæmt lögunum áttu skilanefndir einnig að teljast sem bráðabirgðastjórnir en þær störfuðu sjálfstætt gagnvart Fjármálaeftirlitinu. Þar með varð enn óljósara hvaða hæfisreglur áttu að gilda við mat á hæfi skilanefndarmanna. Varðandi hæfi slitastjórnarmanna, er ljóst að í 6. tölul. 2.mgr. 75.gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti, eru gerðar kröfur um að skiptastjóri þurfi að uppfylla hæfisskilyrði dómara sbr. 5. gr. laga um meðferð einkamála. Hæfisreglur dómara hafa að geyma ýmis sjónarmið sem hægt er að líta til við hæfismat á skiptastjóra. On autumn 2008 the Icelandic financial system collapsed that led to serious banking crisis. The activities of those three banks Glitnir, Kaupþing and Landsbanki Íslands lay down. Subsequently, Alþingi enacted law that gave the Financial Supervisory Authority in Iceland, authority to deviate the previous governors of those three banks. Then the Financial Supervisory Authority in Iceland appointed so called resolution committees to have a temporary control of those banks. After this appointed, a discussion came ...