"Við leitum annarra leiða" : hvernig stjórnendur og leiðtogar hvetja til nýsköpunar í grunnskólum

Viðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna hvernig stjórnendur hvetja til nýsköpunar við nám og störf í grunnskóla. Leitast var við að komast að því hvaða leiðir eru farnar og þykja árangursríkar til að efla nýsköpun í skólastarfi og greina hvernig þarfir og gildin sem þær byggja á eru rökstuddar. Ra...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Helga Vala Viktorsdóttir 1967-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10281
Description
Summary:Viðfangsefni rannsóknarinnar var að kanna hvernig stjórnendur hvetja til nýsköpunar við nám og störf í grunnskóla. Leitast var við að komast að því hvaða leiðir eru farnar og þykja árangursríkar til að efla nýsköpun í skólastarfi og greina hvernig þarfir og gildin sem þær byggja á eru rökstuddar. Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri aðferðafræði í tveimur grunnskólum haustið 2010 og vorið 2011. Tekin voru viðtöl við stjórnendur og leiðtoga ásamt því að framkvæma þátttökuathuganir á rannsóknartímabilinu. Helstu niðurstöður eru meðal annars þær að misjafnt er hvernig skólafólk lítur á hugtakið nýsköpun og skilgreinir það í tengslum við skólastarf. Teymisvinna starfsmanna þótti afar mikilvæg og grundvöllur fyrir farveg nýsköpunarstarfssemi. Áherslur eru lagðar á það að starfsmenn hafi hugrekki og þor til að prófa sig áfram í hóp, fái tækifæri og andrými fyrir skapandi starf fremur en að leggja áherslu á allt sem mælt er, eða tekið út. Mikilvægt þykir að kennarar, foreldrar og nemendur komi að markmiðssetningu í námi hvers nemenda. Þá eru aukin tengsl við atvinnulífið þar sem nemendur hafi meiri tækifæri á að kynnast störfum og nýsköpun sem á sér stað úti í samfélaginu talin mikilvæg og góð leið fyrir foreldra til að setja enn frekar mark sitt á skólastarfið. Auk ofantaldra þátta binda stjórnendur vonir við það að kjarasamningar og vinnurammi kennara breytist þar sem þeir séu hamlandi fyrir skipulag í átt til nýsköpunar. Nýsköpun í skólastarfi verði til þegar hugmyndir eru teknar og framkvæmdar í hóp sem einkennist af fjölbreyttri færni og þekkingu sem menn deila og saman geta skapað nýjar áherslur í skólastarfinu. Niðurstöður þessa rannsóknaverkefnis eru í takt við ályktanir í orðræðunni um fagmennsku með áherslu á samvirkni bæði milli fagmanna og skjólstæðinga sem saman leita lausna og deila ábyrgð. The purpose of this research was to find out how school leaders encourage innovation in compulsory schools in Iceland. An attempt was made to find out what methods are used and are considered effective in order ...