SÁTTardagur í Seljaskóla : bætt samskipti nemenda og stuðningur við jákvæða hegðun

Ritgerðin fjallar um innleiðingu PBS agastjórnunarkerfisins í Seljaskóla í Reykjavík og hvernig leitast hefur verið við að gera PBS kerfið að órjúfanlegum hluta af menningu skólans. Einkunnarorð Seljaskóla eru Samvinna – Ábyrgð – Traust – Tillitssemi. Upphafsstafir þessara orða eru SÁTT. Þetta orð,...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Þórður Kristjánsson
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Agi
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10247
Description
Summary:Ritgerðin fjallar um innleiðingu PBS agastjórnunarkerfisins í Seljaskóla í Reykjavík og hvernig leitast hefur verið við að gera PBS kerfið að órjúfanlegum hluta af menningu skólans. Einkunnarorð Seljaskóla eru Samvinna – Ábyrgð – Traust – Tillitssemi. Upphafsstafir þessara orða eru SÁTT. Þetta orð, SÁTT og þau gildi sem það stendur fyrir eru kennd markvisst og haldið mjög á lofti í skólanum. Þannig er almennt ekki rætt um PBS, eða að Seljaskóli sé PBS skóli, heldur ríkir þar SÁTT. Aðferðarfræði PBS kerfisins er að öllu leyti í heiðri höfð og farið er nákvæmlega eftir öllum reglum varðandi innleiðingu og framkvæmd. SÁTTardagurinn er afsprengi PBS kerfisins sem varð til innan skólans. Hugmyndafræði PBS kerfisins byggir meðal annars á samvinnu og sameiginlegri ábyrgð. Á SÁTTardeginum er hefðbundinn skóladagur brotinn upp og allir nemendurnir, óháð aldri vinna sameiginlega að ákveðnum verkefnum þar sem áhersla er lögð á gildi SÁTTarinnar. Þessi dagur er orðinn hluti af skólastarfi Seljaskóla og mikilvægur liður í þeirri viðleitni starfsfólks Seljaskóla að móta allt starf skólans af Samvinnu, Ábyrgð, Trausti og Tillitssemi.