Námsframboð í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands borið saman við þarfir iðnfyrirtækja á Íslandi

Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort munur sé á milli eftirspurnar eftir þekkingu á sviðum innan iðnaðarverkfræði hjá iðnfyrirtækjum á Íslandi og námsframboði í iðnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands (IVT-deild HÍ). Við rannsóknina var notas...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Engilráð Ósk Einarsdóttir 1982-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10206
Description
Summary:Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort munur sé á milli eftirspurnar eftir þekkingu á sviðum innan iðnaðarverkfræði hjá iðnfyrirtækjum á Íslandi og námsframboði í iðnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands (IVT-deild HÍ). Við rannsóknina var notast við megindlega og eigindlega rannsóknaraðferð. Eigindlegi hluti rannsóknarinnar fólst í forprófun á spurningalista þar sem tekin voru viðtöl við átta einstaklinga hjá iðnfyrirtækjum og skilningur þeirra á spurningunum kannaður. Spurningalistinn var aðlagaður út frá athugasemdum eftir forprófun. Megindlegi hluti rannsóknarinnar fól í sér að senda spurningalistann til 100 einstaklinga hjá iðnfyrirtækjum á Íslandi. Niðurstöður könnunarinnar voru síðan bornar saman við námsframboð IVT-deildar HÍ. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að í forprófun á spurningalista virtist skilningur þátttakenda á spurningalistanum góður. Þátttakendur áttu þó í vandræðum með einstök hugtök, þá helst sviðið umhverfismál. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar má greina að þátttakendur töldu að þekking á stjórnun og mannlegum þáttum væri mikilvægust á sviðum iðnaðarverkfræði en þekking á aðgerðagreiningu ekki eins mikilvæg. Þegar niðurstöður könnunarinnar voru bornar saman við námsframboð IVT-deildar HÍ er meiri eftirspurn eftir þekkingu á sviði nýsköpunar og tækni, mannlegum þáttum og umhverfismálum en námsframboð. Á móti er meiri kennsla á sviðum aðgerðagreiningar og framleiðsluferlis hjá IVT-deild HÍ en iðnaður á Íslandi sækist eftir. The aim of this study is to investigate whether there is a gap between demand and supply of knowledge in areas of industrial engineering within industry in Iceland and courses at the Faculty of Industrial Engineering, Mechanical Engineering and Computer Science (IVT-faculty) of the University of Iceland. Questionnaire was made by partnership group of Industrial Engineering Standards in Europe (IESE). Questionnaire was translated from English to Icelandic. Quantitative and qualitative research method was used ...