Áhrif flutningskostnaðar á þéttbýlismyndun: Staða byggðarlaga á jaðri áhrifasvæðis Reykjavíkur

Í þessari ritgerð verður leitast við að greina áhrif flutningskostnaðar á þéttbýlismyndun. Áhersla verður lögð á íslenskar aðstæður, sér í lagi á jaðarbyggðarlög áhrifasvæðis Reykjavíkur, svo sem Akranes, Reykjanesbæ og Árborg. Hér áður fyrr lá stríður straumur fólks til Reykjavíkur en eftir 1950 he...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Steinn Friðriksson 1988-
Other Authors: Háskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10132
Description
Summary:Í þessari ritgerð verður leitast við að greina áhrif flutningskostnaðar á þéttbýlismyndun. Áhersla verður lögð á íslenskar aðstæður, sér í lagi á jaðarbyggðarlög áhrifasvæðis Reykjavíkur, svo sem Akranes, Reykjanesbæ og Árborg. Hér áður fyrr lá stríður straumur fólks til Reykjavíkur en eftir 1950 hefur byggðaþróunin verið á þá leið að fólki hefur fjölgað í byggðum nálægt Reykjavík svo sem á höfuðborgarsvæðinu og fyrrnefndum jaðarbyggðum. Það vakti því áhuga höfundar að skoða hver væri staða byggða á jaðri áhrifasvæðis Reykjavíkur og að athuga hvort líkur séu til að byggðaþróun í framtíðinni verði svipuð og síðustu ár og áratugi. Flutningskostnaður hefur tekið miklum breytingum á Íslandi síðustu áratugi og má þar helst nefna breytingar á eldsneytisverði, samgöngubætur og tækninýjungar. Hár flutningskostnaður gerir það að verkum að samskipti milli Reykjavíkur og jaðarbyggðanna minnka og hann stuðlar því að einangrun jaðarbyggðanna. Lækkun flutningskostnaður getur hins vegar annaðhvort styrkt samband Reykjavíkur og jaðarbyggðanna, þar sem lækkunin eykur sérhæfingu atvinnugreina milli þeirra, eða stuðlað að hruni verslunargeira jaðarbyggðanna vegna gjaldþrota fyrirtækja sem bogna í samkeppni við fyrirtæki úr borginni, sem búa við lægri meðalkostnað sökum stærðarhagkvæmni. Eftir að hafa skoðað þróun flutningskostnaðar á Íslandi og þá sérstaklega á áhrifasvæði Reykjavíkur má færa rök fyrir því að hann hafi raunveruleg áhrif á þéttbýlismyndun. Til þess að meta áhrifin var notast við línulega aðfallsgreiningu og voru helstu niðurstöðurnar þær að bensínverð, tilkoma Hvalfjarðarganganna og breytingar á verðlagsákvæðum fyrir flutninga hafi haft marktæk áhrif á þróun mannfjölda, í áðurnefndum jaðarbyggðum. Einnig fer verðmæti atvinnuhúsnæðis í jaðarbyggðum hækkandi og gefur það vísbendingar um að fyrirtæki líti jákvæðari augum til þeirra sem staðsetningu fyrir starfsemi sína. En aukin samskipti við borgina opna möguleika fyrir fyrirtæki sem eru plássfrek á land að staðsetja sig í jaðarbyggðunum en samt sem áður selja vörur ...