Ég verður þú, þið verður við : athafnir áhorfenda og staðsetning listaverka

Í þessari listrannsókn eru möguleikar áhorfanda á að eiga í samtali við listaverk skoðaðir. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar fræðileg umfjöllun þar sem aðferðir listamanna til þess að virkja áhorfandann inní skapandi ferli verka eru skoðaðar og hins vegar er umfjöllun um eigin listsköpun. Samtalsl...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Gunndís Ýr Finnbogadóttir 1979-
Other Authors: Listaháskóli Íslands
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2011
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/10088
Description
Summary:Í þessari listrannsókn eru möguleikar áhorfanda á að eiga í samtali við listaverk skoðaðir. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar fræðileg umfjöllun þar sem aðferðir listamanna til þess að virkja áhorfandann inní skapandi ferli verka eru skoðaðar og hins vegar er umfjöllun um eigin listsköpun. Samtalslist og stofnanagagnrýni eru stefnur í samtímalist sem sérstaklega eru teknar fyrir, en með þeim eru áhorfendur hvattir til þess að taka gagnrýna afstöðu gagnvart listheiminum og að vera upplýstir þátttakendur í samfélaginu. Í ritgerðinni fjalla ég um einstök verk úr listasögunni sem dæmi um þessar stefnur og set þau í samhengi við fræðilega umfjöllun. Verkin leitast við að miðla bæði tilfinningu valds, og vanmáttar til áhorfenda, ásamt möguleikum og takmörkuðum áhrifum þessara þátta. Þannig takast verkin á við áhorfendur sem öfluga og ábyrga einstaklinga. Sem dæmi um eigin listsköpun tek ég verk sem sýnd voru í Van Abbemuseum í Eindhoven, Hollandi 18. júní 2011 og verk á sýningunni Læsi í Nýlistasafninu í Reykjavík frá 16.júlí til 11. september, 2011. Verkin eru sett fram þannig að þau reiða sig á þátttöku áhorfenda til þess að verða bæði sýnileg og virk. Þessi verk, ásamt verkum annarra, eru þau sem fjallað er um í fræðihlutanum. Þessir tveir hlutar, þ.e. fræðileg vinna og listsköpun, voru unnir samhliða og studdu hvor annan á gagnkvæman hátt. Verkefnið er mikilvægt í umræðunni um listasöfn og aðra sýningastaði myndlistar sem fræðslurými, en einnig sem innblástur fyrir alla þá sem miðla á einhvern hátt myndlist, hvort sem það eru myndmenntakennarar eða myndlistarmenn. Með verkefninu vonast ég til að umræðan og krafan um aukið aðgengi að myndlist mótist ekki af hræðslu við einföldun og túlkun, heldur því hvernig aðgangur er leið til þess að ná tökum á aðferðum sem og til þess að spyrja mikilvægra spurninga. This artistic research examines the potential for the viewer to engage in a dialogue with works of art. The project is twofold, on the one hand it is based on a theoretical discussion, where artists methods, used ...