Innra markaðsstarf hótela á Íslandi

Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta gerir grein fyrir ákveðinni hugmyndafræði, innri markaðssetningu (e. internal marketing), sem stjórnendur fyrirtækja geta nýtt sér við að hámarka afrakstur þeirrar fjárfestingar sem liggur í mannauð fyrirtækja. Viðfangsefn...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Eva Dögg Björgvinsdóttir
Other Authors: Háskólinn á Akureyri
Format: Thesis
Language:Icelandic
Published: 2004
Subjects:
Online Access:http://hdl.handle.net/1946/1001
Description
Summary:Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri Verkefni þetta gerir grein fyrir ákveðinni hugmyndafræði, innri markaðssetningu (e. internal marketing), sem stjórnendur fyrirtækja geta nýtt sér við að hámarka afrakstur þeirrar fjárfestingar sem liggur í mannauð fyrirtækja. Viðfangsefnið er ferðaþjónusta og er hótelgeirinn tekinn til athugunar. Rannsóknarspurningin sem unnið er út frá er: „Hvers vegna ættu stjórnendur hótela að tileinka sér aðferðir innri markaðssetningar?” Í fræðilega hluta verkefnisins er reynt að sýna fram á af hverju svo ætti að vera. Spurningalisti var lagður fyrir 40 starfsmenn og 20 stjórnendur þriggja og fjögurra stjörnu hótela á Íslandi með símakönnun til að reyna að fá fram hvort unnið sé eftir fræðunum. Fræðin eru síðan tengd við úrvinnslu gagnanna. Í heild sinni kemur rannsóknin vel út og má ætla að það sé að hluta til vegna nokkuð mikillar menntunar stjórnenda en einnig vegna stöðugleika og hás meðalstarfsaldurs þeirra hjá viðkomandi fyrirtæki.Vissulega komu fram atriði sem stjórnendur geta lagað enn frekar til þess, meðal annars, að bæta þjónustugæði útávið og stefna með því að bættum þjónustugæðum í atvinnugreininni. Helstu niðurstöður skýrslunnar eru að stjórnendur þurfa að upplýsa starfsfólk betur um það sem er að gerast innan fyrirtækisins og þá er sérstaklega átt við auglýsinga- og kynningarmál. Einnig komu þættir eins og hrós, gagnrýni og leiðbeiningar stjórnenda ekki nógu vel út. Það sem kemur þó mest á óvart úr rannsókninni, miðað við hátt menntunarstig stjórnenda, er að of fáir stjórnendur líta á starfsmenn sína sem viðskiptavini eins og grundvallað er í fræðunum. Lykilorð: Innri markaðssetning, þjónusta, ferðaþjónusta, hótel, þjónustugæði.