Viðhorf íslenskra og danskra stjórnenda til starfsumhverfis í ljósi norrænna gilda

Norræn forysta byggir á gildum sem notið hafa aukinnar athygli og vinsælda. Viðfangsefni greinarinnar er að fjalla um opinbera stjórnun á Íslandi og skoða hvort og þá með hvaða hætti íslenskir stjórnendur falla að gildum norrænnar forystu. Gerð var rannsókn að danskri fyrirmynd sem nefnist Opinberir...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla
Main Authors: Arnórsdóttir, Bergþóra Hlín, Svansson, Einar, Joensen, Kári
Other Authors: Viðskiptadeild (HB), Department of Business (BU), Háskólinn á Bifröst, Bifröst University
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands 2017
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/657
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2017.13.1.6
Description
Summary:Norræn forysta byggir á gildum sem notið hafa aukinnar athygli og vinsælda. Viðfangsefni greinarinnar er að fjalla um opinbera stjórnun á Íslandi og skoða hvort og þá með hvaða hætti íslenskir stjórnendur falla að gildum norrænnar forystu. Gerð var rannsókn að danskri fyrirmynd sem nefnist Opinberir stjórnendur – verkefni og viðhorf. Spurningalisti í formi vefkönnunar var lagður fyrir 1.685 opinbera stjórnendur, 524 svör bárust eða 31%. Megintilgangur rannsóknarinnar var að draga fram áherslur íslenskra stjórnenda í daglegum störfum, viðhorfum til starfsumhverfis og þess ramma sem unnið er í. Skoðað var starfsumhverfi íslenskra og danskra stjórnenda í samhengi við norræn gildi. Helstu niðurstöður benda til þess að opinber stjórnun á Íslandi einkennist af trausti, skýrum verkferlum, stuttum boðleiðum og litlu skrifræði. Helstu hindranir voru lítil áhrif á löggjöf og pólitískt bakland, tækifæri felast hins vegar í að hafa meiri áhrif og auka árangur í starfseminni. Samstarf og tengslanet var gott á vinnustaðnum og sanngjarnar kröfur voru gerðar til stjórnenda. Sérstaða hvors hóps fólst í því að danskir stjórnendur töldu skrifræði vera of mikið og að einfalda mætti verkferla í því sambandi. Íslenskir stjórnendur virtust hins vegar almennt hafa minni áhrif á starfsumhverfið en danskir starfsfélagar. Verkefni og viðhorf íslenskra opinberra stjórnenda ríma við norræn gildi þar sem opin samskipti, gagnrýni í hugsun og umhyggja eru helstu einkennin. Nordic leadership values have gained increased publicity and popularity recently. The paper looks at Icelandic public management. The main research question is if and how Icelandic managers adhere to Nordic leadership values. The research is based on a prior Danish study: Public managers – tasks and opinions. An online questionnaire was sent to 1.685 public managers in Iceland, with 524 respondents so the participation rate is 31%. The main purpose of the research was to highlight the emphasis of Icelandic managers in daily tasks and get their opinions on their working ...