Einkenni og áskoranir tónlistarklasa á Íslandi

Þessi grein fjallar um þróun tónlistarlífs á Íslandi á undanförnum árum. Margir íslenskir tónlistarmenn hafa átt velgengi að fagna og skapað sér nafn á alþjóðlegum markaði. Stjórnvöld hafa stutt við þróunina á ýmsan hátt og þau hafa mikil áhrif á tónlistarlífið. Umsvifin í greininni benda til að þró...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Tímarit um viðskipti og efnahagsmál
Main Authors: Gunnlaugsdóttir, Freyja, Steinthorsson, Runolfur Smari
Other Authors: Viðskiptafræðideild (HÍ), Faculty of Business Administration (UI), Félagsvísindasvið (HÍ), School of Social Sciences (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Viðskiptafræðideild og hagfræðideild Háskóla Íslands, viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík og Seðlabanki Íslands 2017
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/649
https://doi.org/10.24122/tve.a.2017.14.2.2
Description
Summary:Þessi grein fjallar um þróun tónlistarlífs á Íslandi á undanförnum árum. Margir íslenskir tónlistarmenn hafa átt velgengi að fagna og skapað sér nafn á alþjóðlegum markaði. Stjórnvöld hafa stutt við þróunina á ýmsan hátt og þau hafa mikil áhrif á tónlistarlífið. Umsvifin í greininni benda til að þróunin undanfarin ár hafi ýtt undir myndun klasa í tónlist á Íslandi. Markmiðið með þessari grein er að rannsaka þróun tónlistarlífs á Íslandi út frá kenningum um klasa og samkeppnishæfni. Einnig er þróunin á Íslandi borin saman við þekkta tónlistarklasa erlendis. Byggt er á raundæmisrannsókn þar sem spurt er að hvaða marki megi líta á tónlist á Íslandi sem klasa og ef svo er á hvaða stigi klasaþróunar íslenskur tónlistarklasi kunni að vera. Einnig er spurt um hvaða áskoranir tónlistarklasinn kunni að standa frammi fyrir. Niðurstöður gefa til kynna skýrar vísbendingar um tónlistarklasa á Íslandi og að klasinn sé að færast af mótunarstigi yfir á þróunarstig. Í niðurstöðum felst hagnýtt gildi því varpað er ljósi á atriði og aðstæður sem geta ýtt undir frekari uppbyggingu á sterkum tónlistarklasa á Íslandi. Samhliða er tónlistarklasinn dæmi um klasa í litlu fámennu landi og niðurstöðurnar framlag til þekkingar á klasa í slíkum aðstæðum. Music as part of creative industries in Iceland has been on a positive growth path. Many musicians from Iceland have been succesful in establishing their name and brand internationally. The government has played a critical role in the growth of the music field. There are manifestations that provide support for the existence of a music cluster in Iceland. The purpose of this article is to study the music field from a cluster perspective and reflect on the development with reference to well known music clusters abroad. On the basis of a case study method and cluster assessment tools it is analysed to what extent it is possible to confirm the existence of a music cluster in Iceland. There are clear indications of a music cluster and it is concluded that the music cluster can be described as ...