.hvað segið þið strákar? Upplifun kvenmillistjórnenda af stöðu sinni, möguleikum og hindrunum í starfi

Hægt gengur að jafna stöðu kynjanna í efstu stjórnunarþrepum fyrirtækja á Íslandi. Í rannsókninni er sjónum beint að konum sem gegna stöðum millistjórnenda í stórum eða meðalstórum fyrirtækjum og eru því í hópi mögulegra yfirstjórnenda framtíðarinnar. Markmið rannsóknarinnar er að öðlast skilning á...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Tímarit um viðskipti og efnahagsmál
Main Authors: Einarsdóttir, Unnur Dóra, Kristjánsdóttir, Erla S., Christiansen, Thora
Other Authors: Viðskiptafræðideild (HÍ), Faculty of Business Administration (UI), Félagsvísindasvið (HÍ), School of Social Sciences (UI), Háskóli Íslands, University of Iceland
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: Viðskiptafræðideild og hagfræðideild Háskóla Íslands, viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík og Seðlabanki Íslands 2017
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/641
https://doi.org/10.24122/tve.a.2017.14.1.1
Description
Summary:Hægt gengur að jafna stöðu kynjanna í efstu stjórnunarþrepum fyrirtækja á Íslandi. Í rannsókninni er sjónum beint að konum sem gegna stöðum millistjórnenda í stórum eða meðalstórum fyrirtækjum og eru því í hópi mögulegra yfirstjórnenda framtíðarinnar. Markmið rannsóknarinnar er að öðlast skilning á upplifun og reynslu kvennanna af stöðu sinni, hindrunum og möguleikum til starfsþróunar. Viðtöl við þær voru greind og túlkuð eftir aðferðum fyrirbærafræðinnar. Helstu niðurstöður benda til þess að flókinn vefur óáþreifanlegra hindrana sé til staðar í formi karllægrar menningar, viðhorfa, formgerða fyrirtækja sem og langlífra staðalímynda. Konurnar upplifa efsta stjórnunarlagið sem lokaða karlaklíku; yfirstjórnendastörfin sem sniðin að þörfum og aðstæðum karlmanna og að þær geti ekki bætt á sig frekari ábyrgð; vinnusemi og vandvirkni þeirra finnst þeim ekki metin að verðleikum og loks máta þær sig í hlutverk yfirstjórnandans og áfellast sjálfar sig fyrir að falla ekki að staðalímyndinni. Í sameiningu draga þessir þættir úr sjálfstrausti kvennanna og þrótti til að sækjast eftir hærri stöðum ásamt því að valda þeim álagi og um leið viðhalda raunverulegum vanda ójafnréttis kynjanna í æðstu stjórnendastöðum fyrirtækjanna. Despite Iceland’s excellent performance on many gender equality measures, its ratio of women in top-management positions is improving very slowly. This research focuses on women who hold middle management positions in some of the largest organizations in Iceland, women who could be in line for top-management positions. It aims to understand the lived experiences of these women, the barriers, and opportunities for career development. In-depth interviews with eleven women were analyzed and interpreted according to phenomenological methodology. Findings reveal that the women feel they face insurmountable barriers on their way up the corporate ladder. They experience top-management as a closed Old Boys’ Club; top management jobs as tailored for men, requiring them to take on unbearable responsibilities; ...