Atvikaskráning tengd skurðaðgerðum á Landspítala : Lýsandi rannsókn
Tilgangur Óvænt atvik í heilbrigðiskerfinu eru ein af aðalástæðum óvæntra dauðsfalla og örorku í heiminum í dag og um 10% sjúklinga í hinum vestræna heimi verða fyrir skaða vegna atvika þegar þeir leggjast inn á spítala. Talið er að hægt sé að koma í veg fyrir um helming þessara atvika. Tilgangur ra...
Published in: | Tímarit hjúkrunarfræðinga |
---|---|
Main Authors: | , , |
Other Authors: | , , |
Format: | Article in Journal/Newspaper |
Language: | Icelandic |
Published: |
2024
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/5324 https://doi.org/10.33112/th.100.1.3 |
Summary: | Tilgangur Óvænt atvik í heilbrigðiskerfinu eru ein af aðalástæðum óvæntra dauðsfalla og örorku í heiminum í dag og um 10% sjúklinga í hinum vestræna heimi verða fyrir skaða vegna atvika þegar þeir leggjast inn á spítala. Talið er að hægt sé að koma í veg fyrir um helming þessara atvika. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á tíðni óvæntra skráðra atvika sem tengdust skurðaðgerðum á ákveðnum deildum Landspítala á árunum 2018–2020 og kanna hvort fagfólk kemur með tillögur að leiðum til úrbóta sem kæmu í veg fyrir að atvik endurtækju sig. Aðferð Megindleg lýsandi rannsókn, gögnin voru öll skráð atvik á skurðstofum, vöknunardeildum og dagdeildum skurðlækninga Landspítala árin 2018- 2020. Niðurstöður Skráðum atvikum á þeim deildum sem rannsakaðar voru fækkaði á milli ára á meðan heildarfjöldi atvika á Landspítala var svipaður. Algengustu atvikin sem skráð voru tengdust meðferð/rannsókn, tækjabúnaði og lyfjameðferð. Talsvert var um að fagfólk skráði atvik ekki í réttan flokk samkvæmt skilgreiningum í flokkunarkerfi Landspítala eða í um 29% tilfella. Á flestum deildunum var komið með tillögur til úrbóta. Í kringum 90% allra atvika voru af alvarleikaflokki 1., þ.e. sjúklingur varð fyrir óverulegum eða engum skaða. Algengast var að fagfólk teldi að bætt samskipti, minna álag á fagfólk og betri mönnun eða bætt skráning gætu komið í veg fyrir að atvik endurtækju sig. Ályktanir Atvikaskráning á Landspítala er ekki nægjanlega markviss sem torveldar úrvinnslu og nýtingu atvikaskráningar. Þjálfun fagfólks í skráningu atvika er mikilvæg. Eins getur efling fagfólks í notkun staðla og gátlista, sem og í samskiptum bætt öryggi sjúklinga og fagfólks. Stjórnendur þurfa að stuðla að öflugri öryggismenningu með því að sýna forystu og nýta skráningu atvika til lærdóms og umbóta. Aim Unexpected incidents in the healthcare system are considered one of the leading causes of unexpected death and disability worldwide. It has been estimated that about 10% of patients in Western countries are harmed while admitted to hospital, and ... |
---|