Þróun líkamsþyngdar barnshafandi kvenna við upphaf meðgöngu á Norðurlandi árin 2004-2022

Publisher Copyright: © 2024 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Ofþyngd og offita barnshafandi kvenna er ört vaxandi lýðheilsu­vandamál um allan heim, að Íslandi meðtöldu. Meðgöngukvillar og frávik í fæðingu eru algengari meðal þessara kvenna. Markmið rannsóknarinnar var að skoða þró...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Jónsdóttir, Kamilla Dóra, Hrólfsdóttir, Laufey, Gunnarsson, Björn, Jónsdóttir, Ingibjörg, Halldórsson, Þórhallur Ingi, Smárason, Alexander Kristinn
Other Authors: Matvæla- og næringarfræðideild, Heilbrigðis-, viðskipta og raunvísindasvið, Háskólinn á Akureyri, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2024
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4901
https://doi.org/10.17992/lbl.2024.04.789
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2024 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Ofþyngd og offita barnshafandi kvenna er ört vaxandi lýðheilsu­vandamál um allan heim, að Íslandi meðtöldu. Meðgöngukvillar og frávik í fæðingu eru algengari meðal þessara kvenna. Markmið rannsóknarinnar var að skoða þróun líkamsþyngdar við upphaf meðgöngu meðal kvenna á Norðurlandi 2004 til 2022, og hvort marktæk breyting hafi orðið á algengi ofþyngdar og offitu í þessum hópi. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Rannsóknin var afturskyggn þversniðsrannsókn gerð á konum búsettum á Norðurlandi sem fæddu á Sjúkrahúsinu á Akureyri 2004 til 2022 (N=7410). Upplýsingar um aldur, fjölda fyrri fæðinga, hæð og þyngd móður fyrir meðgöngu voru fengnar úr fagrýnisgrunni fæðingardeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Líkamsþyngdarstuðull (LÞS) kvennanna var reiknaður út frá uppgefinni hæð og þyngd, og miðgildi LÞS ásamt hlutfalli (%) kvenna í hverjum LÞS-flokki var reiknað fyrir fjögur árabil. NIÐURSTÖÐUR Miðgildi LÞS hækkaði úr 24,5 kg/m2 á árunum 2004-2008 í 26,2 kg/m2á síðasta árabilinu, 2019-2022. LÞS hækkaði að jafnaði um 0,15 kg/m2 með hverju ári sem leið (p<0,001). Algengi kjörþyngdar lækkaði úr 53% í 40%. Samsvarandi hliðraðist dreifingin milli LÞS-flokka öll í átt að hærri LÞS, en hlutfall kvenna í offituflokki 1 (LÞS 30,0-34,9) fór úr 12,8% í 17,3%. Hlutfall kvenna tvöfaldaðist (3,7% í 8,1%) í offituflokki 2 (LÞS 35,0-39,9) og þrefaldaðist (1,6% í 4,8%) í offituflokki 3 (LÞS ≥40,0). ÁLYKTUN Líkamsþyngd barnshafandi kvenna á Norðurlandi hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin 19 ár og eru nú 30% þeirra með offitu við upphaf meðgöngu. Mikilvægt er að skoða nánar áhrif þessa á meðgöngu og fæðingu, og hvernig minnka megi þau áhrif og snúa þróuninni við. INTRODUCTION: Prepregnancy overweight and obesity is an increasing public health issue worldwide, including Iceland, and has been associated with higher risk of adverse maternal and birth outcomes. The aim of this study was to investigate trends in prepregnancy weight amongst women in North Iceland from ...