Styrkur í smæðinni : Líðan og samskipti unglinga í smærri og stærri byggðalögum

Lífsgæði og versnandi líðan unglinga hefur verið skoðuð í samhengi samfélagsbreytinga en búsetuskilyrði hafa lítið komið við sögu í þeirri umræðu. Erlendar rannsóknir sýna misvísandi niðurstöður um það hvort unglingum í borgum eða strjálli byggð líður betur en líðan unglinga eftir byggðasvæðum hefur...

Full description

Bibliographic Details
Main Author: Rúnarsdóttir, Eyrún María
Other Authors: Deild menntunar og margbreytileika
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4620
Description
Summary:Lífsgæði og versnandi líðan unglinga hefur verið skoðuð í samhengi samfélagsbreytinga en búsetuskilyrði hafa lítið komið við sögu í þeirri umræðu. Erlendar rannsóknir sýna misvísandi niðurstöður um það hvort unglingum í borgum eða strjálli byggð líður betur en líðan unglinga eftir byggðasvæðum hefur ekki verið könnuð hérlendis. Markmið rannsóknarinnar var að bera saman tíðni sállíkamlegra umkvartana unglinga eftir byggðalögum. Einnig var horft til kyns, aldurs, efnahags fjölskyldu og fjölda vina í tengslum við líðan. Spurningalisti var lagður fyrir nemendur í 8.–10. bekk í níu grunnskólum. Þar af voru fjórir skólar á höfuðborgarsvæðinu, tveir á Suðurnesjum, einn á Vesturlandi, einn á Vestfjörðum og einn á Norðurlandi. Alls svöruðu 806 unglingar spurningalistunum. Niðurstöður sýndu mun á umkvörtunum unglinga á þann veg að í smærri byggðalögum var tíðni umkvartana minni. Stúlkur fundu frekar til vanlíðanar en piltar, eldri frekar en yngri ungmenni og lakari efnahagur fjölskyldu tengdist hærri tíðni umkvartana. Almennt jókst tíðni umkvartana meðfram fjölgun netvina en þegar tengsl netvináttu og líðanar var skoðuð eftir byggðasvæðum hafði slík vinátta ávinning í för með sér fyrir unglinga á Vestfjörðum, Vestur- og Norðurlandi. Niðurstöðurnar gefa tilefni til að skoða nánasta umhverfi unglinga og áhrif þess á samskipti og tengsl við mótun úrræða til að bæta líðan þeirra. International research present conflicting findings on whether well-being is better supported in rural or urban environments, but this aspect remains unexplored in the context of Iceland. The study aimed to assess and compare psychosomatic complaints among adolescents be-tween urban and semi-urban areas. Additionally, the research explores the influence of gender, age, family affluence, and the number of friends on adolescent well-being. A survey was conducted across nine schools, with four in the capital area, two in Reykjanes, and three in the western and northern regions of the country, involving 806 participants ranging from 8th to 10th ...