Eru vannýtt tækifæri til að draga úr skattsvikum? : Spjótum beint að siðferði og persónuleika
Umfang skattsvika er umtalsvert hér á landi. Sé dregið úr slíkum efnahagsglæpum er hægt að auka tekjur hins opinbera töluvert. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að varpa ljósi á hvað kunni að skýra það að sumir samfélagsþegnar eru líklegri en aðrir til að svíkja undan skatti. Í því skyni v...
Published in: | Icelandic Review of Politics & Administration |
---|---|
Main Authors: | , |
Other Authors: | |
Format: | Article in Journal/Newspaper |
Language: | Icelandic |
Published: |
2023
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/4612 https://doi.org/10.13177/irpa.a.2023.19.2.4 |
Summary: | Umfang skattsvika er umtalsvert hér á landi. Sé dregið úr slíkum efnahagsglæpum er hægt að auka tekjur hins opinbera töluvert. Markmið rannsóknarinnar var annars vegar að varpa ljósi á hvað kunni að skýra það að sumir samfélagsþegnar eru líklegri en aðrir til að svíkja undan skatti. Í því skyni var bæði einblínt á skattasiðferði og persónuleikaeinkenni einstaklinga. Hins vegar var markmiðið að greina hvaða hópa skattgreiðenda sé fýsilegt að miða aðgerðir að með það að leiðarljósi að draga úr skattsvikum. Í gegnum rafrænt hentugleikaúrtak fengust svör frá 593 einstaklingum sem svöruðu spurningalista þar sem áform um skattsvik, skattasiðferði og persónuleiki var mældur. Niðurstöðurnar sýndu að skattasiðferði hefur veigamesta forspárgildið um það hvort fólk sé líklegt til að svíkja undan skatti. Jafnframt reyndust persónuleikaeinkennin heiðarleiki og auðmýkt annars vegar og siðblinda hins vegar skipta töluverðu máli í þessu sambandi. Niðurstöður klasagreiningar leiddu í ljós að ákjósanlegt sé að skipta skattgreiðendum í þrjá hópa sem nefndir voru heiðvirðu samfélagsþegnarnir, hverfulu samfélagsþegnarnir og refjóttu samfélagsþegnarnir. Hinir heiðvirðu eru mjög ólíklegir til að svíkja undan skatti og hafa hátt skattasiðferði. Það væri því ekki skilvirk nýting á fjármagni að einblína á einstaklinga í þeim hópi. Hinir tveir hóparnir, hinir hverfulu og refjóttu, eru hópar sem ætti markvisst að miða á til að draga úr skattsvikum. Fýsilegast er líklega að setja í forgang aðgerðir sem miða að hinum hverfulu þó jafnframt þurfi að huga að hinum refjóttu. Beita þarf ólíkum aðgerðum til að ná til þessara hópa, líkt og farið er yfir í greininni. The scope of tax evasion is significant in Iceland. By reducing such economic crime, it is possible to increase public income considerably. The aim of the study was twofold. Firstly, to shed light on what might explain why some mem bers of society are more likely to evade taxes than others. In that regard, a focus was put on both tax morale and personality traits. Secondly, the ... |
---|