Eru vannýtt tækifæri til að draga úr skattsvikum? : Spjótum beint að siðferði og persónuleika

Umfang skattsvika er umtalsvert hér á landi. Sé dregið úr slíkum efnahags­glæpum er hægt að auka tekjur hins opinbera töluvert. Markmið rannsóknar­innar var annars vegar að varpa ljósi á hvað kunni að skýra það að sumir sam­félagsþegnar eru líklegri en aðrir til að svíkja undan skatti. Í því skyni v...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Icelandic Review of Politics & Administration
Main Authors: Steinarsdóttir, Arna Laufey, Hermannsdóttir, Auður
Other Authors: Viðskiptafræðideild
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4612
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2023.19.2.4
Description
Summary:Umfang skattsvika er umtalsvert hér á landi. Sé dregið úr slíkum efnahags­glæpum er hægt að auka tekjur hins opinbera töluvert. Markmið rannsóknar­innar var annars vegar að varpa ljósi á hvað kunni að skýra það að sumir sam­félagsþegnar eru líklegri en aðrir til að svíkja undan skatti. Í því skyni var bæði einblínt á skattasiðferði og persónuleikaeinkenni einstaklinga. Hins vegar var markmiðið að greina hvaða hópa skattgreiðenda sé fýsilegt að miða aðgerðir að með það að leiðarljósi að draga úr skattsvikum. Í gegnum rafrænt hentug­leikaúrtak fengust svör frá 593 einstaklingum sem svöruðu spurningalista þar sem áform um skattsvik, skattasiðferði og persónuleiki var mældur. Niðurstöð­urnar sýndu að skattasiðferði hefur veigamesta forspárgildið um það hvort fólk sé líklegt til að svíkja undan skatti. Jafnframt reyndust persónuleikaeinkennin heiðarleiki og auðmýkt annars vegar og siðblinda hins vegar skipta töluverðu máli í þessu sambandi. Niðurstöður klasagreiningar leiddu í ljós að ákjósanlegt sé að skipta skattgreiðendum í þrjá hópa sem nefndir voru heiðvirðu sam­félagsþegnarnir, hverfulu samfélagsþegnarnir og refjóttu samfélagsþegnarnir. Hinir heiðvirðu eru mjög ólíklegir til að svíkja undan skatti og hafa hátt skatta­siðferði. Það væri því ekki skilvirk nýting á fjármagni að einblína á einstaklinga í þeim hópi. Hinir tveir hóparnir, hinir hverfulu og refjóttu, eru hópar sem ætti markvisst að miða á til að draga úr skattsvikum. Fýsilegast er líklega að setja í forgang aðgerðir sem miða að hinum hverfulu þó jafnframt þurfi að huga að hinum refjóttu. Beita þarf ólíkum aðgerðum til að ná til þessara hópa, líkt og farið er yfir í greininni. The scope of tax evasion is significant in Iceland. By reducing such economic crime, it is possible to increase public income considerably. The aim of the study was twofold. Firstly, to shed light on what might explain why some mem bers of society are more likely to evade taxes than others. In that regard, a focus was put on both tax morale and personality traits. Secondly, the ...