Mikilvægi stuðnings við fullgildi barna fyrir inngildandi leikskólastarf

Inngilding (e. inclusion) er mikilvæg fyrir gæðaríkt leikskólastarf sem getur haft langvarandi jákvæð áhrif á nám og þroska barna. Markmið rannsóknarinnar var því að skoða hvaða þættir í fari starfsfólks leikskóla, starfshátta þeirra og starfsumhverfis tengdust sterkast trú starfsfólks á eigin getu...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Authors: Þrastardóttir, Guðrún Jóna, Pálmadóttir, Hrönn, Stefánsson, Kristján Ketill
Other Authors: Deild kennslu- og menntunarfræði
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4608
https://doi.org/10.24270/netla.2023/16
Description
Summary:Inngilding (e. inclusion) er mikilvæg fyrir gæðaríkt leikskólastarf sem getur haft langvarandi jákvæð áhrif á nám og þroska barna. Markmið rannsóknarinnar var því að skoða hvaða þættir í fari starfsfólks leikskóla, starfshátta þeirra og starfsumhverfis tengdust sterkast trú starfsfólks á eigin getu til inngildingar. Gögn úr starfsmannakönnun leikskóla á vegum Skólapúlsins árin 2020 og 2021 voru greind með marglaga líkani (e. multilevel model). Þátttakendur voru 1854 og náði úrtakið til rúmlega þriðjungs allra leikskóla á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að til að auka trú starfsfólks á eigin getu til inngildingar væri vert að horfa sérstaklega til þess að auka trú starfsfólks á eigin getu til að styðja við fullgildi (e. belonging) barna. Einnig var áhugavert að trú starfsfólks á eigin getu til að mæta krefjandi hegðun barna skipti töluverðu máli í leikskólum þar sem trú á eigin getu til inngildingar var lág en minna máli eftir því sem trú á eigin getu til inngildingar mældist hærri. Aðrar forspárbreytur rannsóknarinnar; trú á eigin getu til að styðja börn með sérþarfir, samstarf innan leikskólans og starfsreynsla, sýndu marktæk en veik tengsl við trú á eigin getu til inngildingar. Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta jafnframt fræðilega aðgreiningu hugtakanna inngilding og fullgildi. Introduction: Inclusion is a central part of high-quality early childhood education, which can have a positive, long-term effect on children’s development. Teacher selfefficacy for inclusive practices has been found to be an important factor in their attitudes towards inclusion. Furthermore, positive attitudes towards inclusion are essential to the successful implementation of inclusive education since attitudes can predict later behaviour. However, implementing inclusive education has been difficult in Iceland as in other countries. One reason is a lack of support towards teachers and other staff working with children. Theoretical frame and aim of this research: Bandura’s social cognitive theory provided a theoretical ...