Íslenskur námsorðaforði

Viðfangsefni þessarar rannsóknar er íslenskur námsorðaforði sem byggist á lagskiptingu orðaforða tungumálsins. Markmiðið var að móta lista yfir íslenskan námsorðaforða, orða í lagi 2 (LÍNO-2). Slíkur listi er mikilvægur því hann gefur upplýsingar um hvaða íslensk orð nemendur á mismunandi aldri þurf...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Authors: Pálsdóttir, Auður, Ólafsdóttir, Sigríður
Other Authors: Deild faggreinakennslu, Deild kennslu- og menntunarfræði
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4607
https://doi.org/10.24270/netla.2023/9
Description
Summary:Viðfangsefni þessarar rannsóknar er íslenskur námsorðaforði sem byggist á lagskiptingu orðaforða tungumálsins. Markmiðið var að móta lista yfir íslenskan námsorðaforða, orða í lagi 2 (LÍNO-2). Slíkur listi er mikilvægur því hann gefur upplýsingar um hvaða íslensk orð nemendur á mismunandi aldri þurfa að þekkja til að geta skilið, rætt og skrifað um það sem þau fást við í námi hverju sinni. Hér var því rannsakaður orðaforði tungumálsins en ekki orðaforði einstaklinga. Orð í lagi 1 eru hátíðniorð, algengustu orðin sem lærast í daglegum samskiptum. Í lagi 2 eru orð sem eru notuð þvert á námsgreinar og koma iðulega fyrir í fræðilegu ritmáli en síður í daglegu tali. Í lagi 3 eru sértæk og tæknileg íðorð sem hafa ákveðnar skilgreiningar innan fræðasviða og faggreina. Það eru einkum orð í lagi 2 sem kennurum hættir til að líta fram hjá í kennslu. Lítil þekking nemenda á þessum orðum er ein af meginástæðum þess að þeim gengur illa að skilja lesinn texta, sem síðan dregur úr námsárangri. Þessi rannsókn er hluti af stærra rannsóknarverkefni þar sem íslenskur námsorðaforði er meginviðfangsefnið. Sett var saman ný málheild (Málheild fyrir íslenskan námsorðaforða, MÍNO) með völdum samtímatextum Íslensku Risamálheildarinnar (RMH) og Markaðrar íslenskrar málheildar (MÍM), en þar á meðal er námsefni Menntamálastofnunar. Samtals telur MÍNO 31.680.235 lesmálsorð og eru allir textar frá þessari öld. Orðum sem koma fyrir 100 sinnum eða oftar í málheildinni er raðað eftir tíðni og telur heildarorðtíðnilistinn 10.314 orð (lemmur) sem tilheyra lagi 1, 2 og 3. Hinn nýi listi yfir íslenskan námsorðaforða (LÍNO-2) telur 2.294orð sem tilheyra lagi 2. Þessi listi yfir íslenskan námsorðaforða mun nýtast kennurum og nemendum hér á landi við að efla orðaforða nemenda, lesskilning og tjáningarfærni auk þess að vera framlag til áframhaldandi kennslu og rannsókna sem miða að því að halda lífi í íslenskum orðum með komandi kynslóðum. In Iceland and elsewhere, there is an increased awareness of the key role that vocabulary plays in learners’ ...