Skuldbinding leikskólakennara til vinnustaðar: Starfsandi í lykilhlutverki

Lög um eitt leyfisbréf leik-, grunn- og framhaldsskólakennara tóku gildi þann 1. janúar 2020. Eftir gildistöku laganna flutti fjöldi leikskólakennara sig um set og hóf störf á grunnskólastigi. Markmið rannsóknarinnar var að bæta stöðu þekkingar og koma auga á vísbendingar um hvernig megi varðveita h...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Authors: Isaksen, Rakel Ýr, Ástvaldsdóttir, Ingileif, Stefánsson, Kristján Ketill
Other Authors: Deild kennslu- og menntunarfræði, Menntavísindasvið
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4601
https://doi.org/10.24270/netla.2023.4
Description
Summary:Lög um eitt leyfisbréf leik-, grunn- og framhaldsskólakennara tóku gildi þann 1. janúar 2020. Eftir gildistöku laganna flutti fjöldi leikskólakennara sig um set og hóf störf á grunnskólastigi. Markmið rannsóknarinnar var að bæta stöðu þekkingar og koma auga á vísbendingar um hvernig megi varðveita hæfni og sérþekkingu starfandi leikskólakennara. Rannsóknaraðferðin var megindleg, rýnt var í fyrirliggjandi gögn og þau greind með lýsandi tölfræði og fjölbreytuaðhvarfsgreiningu. Gagnasafnið samanstóð af svörum 1250 leikskólakennara við starfsmannakönnun Skólapúlsins fyrir leikskóla, sem svarað var vorin 2020 og 2021. Tvíþáttakenningin (e. Motivation hygiene theory) var lögð til grundvallar varðandi greiningu gagnanna. Tvær tilgátur voru prófaðar: 1. Leikskólakennarar sem upplifa sterka hvataþætti (t.d. góðan starfsanda) eru líklegir til að sýna skuldbindingu til vinnustaðar; 2. Leikskólakennarar sem upplifa slaka hollustuhætti (t.d. mikið vinnuálag) eru ólíklegir til að sýna skuldbindingu til vinnustaðar. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til að hvataþættirnir starfsandi, jákvæðar áskoranir í starfi og ræktun mannauðs væru í lykilhlutverki hvað varðar skuldbindingu leikskólakennara til vinnustaðarins. Niðurstöðurnar gáfu jafnframt til kynna að viðvarandi vinnuálag spilaði mikilvægt hlutverk í ótímabæru brotthvarfi leikskólakennara úr starfi. Brýnt virðist að styðja við hvatabundna þætti og draga úr neikvæðum hollustuþáttum í starfsumhverfi leikskóla. In Iceland, kindergarten is the first level of the school system and the beginning of the formal education of each child. Kindergarten teachers are specialized in teaching young children. A new act on the education, competency and recruitment of teachers and administrators of preschools, compulsory schools and upper secondary schools entered into force at the beginning of 2020. The act provides for the issuing of a single type of teaching license. The aim of a single teacher’s license is, among other things, to increase the flexibility and flow of teachers between ...