Hermikennsla læknanema á Íslandi

Publisher Copyright: © 2023 Laeknafelag Islands. All rights reserved. ÁGRIP INNGANGUR Færnibúðir og hermisetur eru orðin fastur hluti af kennslu í mörgum læknaskólum. Markmið þessarar rannsóknar var að lýsa stöðu hermingar (simulation) í læknanámi á Íslandi með því að kanna reynslu læknanema og kenn...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Valsdóttir, Elsa Björk, Haraldsson, Hans, Schram, Ásta Bryndís, Dieckmann, Peter
Other Authors: Skurðlækningar, Læknadeild, Heilbrigðisvísindasvið
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4486
https://doi.org/10.17992/lbl.2023.10.761
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2023 Laeknafelag Islands. All rights reserved. ÁGRIP INNGANGUR Færnibúðir og hermisetur eru orðin fastur hluti af kennslu í mörgum læknaskólum. Markmið þessarar rannsóknar var að lýsa stöðu hermingar (simulation) í læknanámi á Íslandi með því að kanna reynslu læknanema og kennara, hvaða þættir auðvelda eða hindra notkun hermingar í kennslu og hvernig hugtakið er notað í kennsluskrá Háskóla Íslands. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Rannsóknin var þríþætt. Rafrænar kannanir voru sendar til læknanema annars vegar og kennara í læknadeild Háskóla Íslands hins vegar. Síðan var gerð orðaleit í kennsluskrá háskólans. NIÐURSTÖÐUR Svarhlutfall í könnunum, bæði læknanema og kennara, var 65%. Hermingu var lýst sem kennsluaðferð hjá 10% kennara þegar nemar voru spurðir en hjá um þriðjungi þegar kennarar voru spurðir. Viðhorf bæði læknanema og kennara var jákvætt. Kennarar, sem höfðu áður kynnst hermingu, voru líklegri til að nota hermingu og það átti líka við um kennara sem höfðu fengið einhverja þjálfun í kennsluaðferðum. Aðalhindranir voru skortur á aðstöðu, búnaði, fjármagni og þjálfun. Í kennsluskrá fundust fá leitarorð tengd kennslu með hermingu. ÁLYKTUN Reynsla læknanema og kennara af hermingu er takmörkuð en innan við þriðjungur kennara segist hafa notað þessa kennsluaðferð við kennslu læknanema. Hindranir á notkun eru svipaðar á Íslandi og lýst hefur verið erlendis. Fá leitarorð í kennsluskrá tengd hermingu vekja spurningar um mikilvægi kennsluaðferða í huga kennara. Mögulegar leiðir til að auka notkun hermingar gætu verið að bæta innviði og bjóða völdum kennurum þjálfun í fjölbreyttum kennsluaðferðum, þar með talið hermingu. BACKGROUND: Skills labs and simulation centers have become an integrated part of teaching methods in many medical schools. This study aims to describe the status of simulation in medical education in Iceland by examining student and faculty experience, facilitating and barring factors for its use in teaching and how the concept appears in the Course Catalog. MATERIALS AND METHODS: ...