Brunaslys barna : Innlagnir á Landspítala 2000-2008
Ágrip Tilgangur: Að afla upplýsinga um brunaslys barna sem lögðust inn á Landspítala á níu ára tímabili, meta hvort efla þurfi forvarnir og endurskoða ákveðna þætti í meðferð. Aðferðir: Í þessari afturskyggnu lýsandi rannsókn var upplýsingum safnað úr sjúkraskrám um börn yngri en átján ára sem dvöld...
Published in: | Læknablaðið |
---|---|
Main Authors: | , , , , , , , |
Other Authors: | , |
Format: | Article in Journal/Newspaper |
Language: | Icelandic |
Published: |
2010
|
Subjects: | |
Online Access: | https://hdl.handle.net/20.500.11815/4470 https://doi.org/10.17992/lbl.2010.11.326 |
Summary: | Ágrip Tilgangur: Að afla upplýsinga um brunaslys barna sem lögðust inn á Landspítala á níu ára tímabili, meta hvort efla þurfi forvarnir og endurskoða ákveðna þætti í meðferð. Aðferðir: Í þessari afturskyggnu lýsandi rannsókn var upplýsingum safnað úr sjúkraskrám um börn yngri en átján ára sem dvöldu lengur en≥ sólarhring á Landspítala vegna brunaáverka á húð á árunum 2000-2008. Niðurstöður: Af 149 börnum voru 108 drengir og 41 stúlka. Meðalfjöldi innlagna á ári var 16,5 eða 21/100 000. Brunaslys voru algengust hjá fjögurra ára og yngri (41,6%) og í aldurshópnum 13-16 ára (45,7%). Hjá meirihlutanum (81%) var útbreiðsla áverka £10% af líkamsyfirborði. Helmingur slysa varð inni á heimili. Sár voru kæld á vettvangi í 78% tilvika. Áhættuþættir voru til staðar hjá 11,4% barna og hjá 3,4% barna var grunur um vanrækslu eða ofbeldi. Helstu brunavaldar voru heitt vatn og aðrir heitir vökvar (50,3%), þar af neysluvatn í 12,9% tilvika, eldur í 20,4% tilvika, þar af gas eða bensín hjá 14,9% barna, og skoteldar (17,6%). Meðaltími frá komu á bráðamóttöku að innlögn á barnadeild var 142 mínútur, (25-333). Meðallegutími var 13 dagar, miðgildið níu dagar (1-97) að meðtöldum sex dögum á gjörgæsludeild, miðgildið tveir dagar (1- 48) . Ályktun:Innlögnum vegna brunaáverka hefur fækkað. Algengustu brunavaldar eru heitt vatn, heitir vökvar, eldur og skoteldar. Flest eru slysin hjá börnum ≤yngri en fjögurra ára og hjá drengjum 13-16 ára. Mikilvægt er að auka öryggi barna á heimilum og beina forvörnum að áhættuhópum. Vanda þarf fyrsta mat á útbreiðslu sára og greina þætti sem hafa áhrif á dvalartíma á bráðamóttöku og legudeild. Bæta þarf skráningu í sjúkraskrá. Background: Causes of burn injuries in children are universally associated with social and environmental factors. Epidemiological studies are therefore important in identifying risk factors and for planning preventive interventions. Methods: Children younger than 18 years with skin burns who were treated as inpatients at Landspitali University Hospital over a 9-year period, 2000 ... |
---|