Blæðing eftir fæðingu einbura á Íslandi árin 2013–2018, nýgengihlutfall og áhættuþættir

Publisher Copyright: © 2023 Laeknafelag Islands. All rights reserved. Ágrip INNGANGUR Miklar blæðingar eftir fæðingu er vaxandi vandamál víða um heim. Samkvæmt skýrslum Fæðingaskrár hefur vandamálið einnig aukist á Landspítala, ef marka má skráningu á greiningarkóðanum O72. Markmið rannsóknarinnar v...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Sævarsdóttir, Karen Sól, Swift, Emma Marie, Einarsdóttir, Kristjana, Gunnarsdóttir, Jóhanna
Other Authors: Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Læknadeild, Önnur svið, Heilbrigðisvísindasvið
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4397
https://doi.org/10.17992/lbl.2023.0708.751
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2023 Laeknafelag Islands. All rights reserved. Ágrip INNGANGUR Miklar blæðingar eftir fæðingu er vaxandi vandamál víða um heim. Samkvæmt skýrslum Fæðingaskrár hefur vandamálið einnig aukist á Landspítala, ef marka má skráningu á greiningarkóðanum O72. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á nýgengihlutfall og áhættuþætti ≥1000 ml blæðingar eftir fæðingu einbura á Íslandi árin 2013-2018. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Þessi ferilrannsókn náði til 21.110 einburafæðinga á árunum 2013-2018. Gögn fengust frá Fæðingaskrá. Blæðing eftir fæðingu var skilgreind á þrjá vegu og tíðnin skoðuð út frá þeim skilgreiningum: blæðing >500 ml, blæðing ≥1000 ml og greiningarkóði O72, og hlutfall blæðinga af öllum fæðingum árlega reiknað. Tvíkosta aðhvarfsgreining var notuð til þess að meta bæði breytingu yfir tíma á hlutfalli ≥1000 blæðingar eftir fæðingu, lagskipt eftir líkamsþyngdarstuðli móður, ásamt því að kanna áhættuþætti fylgikvillans. NIÐURSTÖÐUR Greiningarkóðinn O72 fyrir blæðingu eftir fæðingu var vanskráður á rannsóknartímabilinu. Konur í ofþyngd sem fæddu einbura árið 2018 voru meira en tvöfalt líklegri til þess að blæða ≥1000 ml eftir fæðingu borið saman við þær sem fæddu árið 2013 (OR 2,23; CI 1,35-3,81). Sterkustu áhættuþættirnir fyrir blæðingu voru bráðakeisaraskurður (OR 2,68; CI 2,22-3,22) og áhaldafæðing (OR 2,18; CI 1,80-2,64) en fæðing þungbura, fæðing fyrsta barns og LÞS ≥30 voru einnig sjálfstæðir áhættuþættir. ÁLYKTUN Nýgengihlutfall ≥1000 ml blæðinga eftir fæðingu hefur aukist, en einungis meðal kvenna í ofþyngd. Aukningin gæti skýrst af flóknu samspili milli neikvæðra heilsufarsáhrifa offitu og auknum inngripum hjá þessum hóp. Í ljósi vanskráningar á greiningarkóðanum O72 er nauðsynlegt að horfa til skráðs magns blæðingar þegar gögn frá Fæðingaskrá eru notuð. INTRODUCTION: Many countries have reported an increased incidence proportion of postpartum hemorrhage (PPH). The proportion might also have increased at the National University Hospital of Iceland, based on the registration of ...