Tengsl fræða og starfs í kennaramenntun: Sjónarhorn nema

Kennaramenntun hefur víða verið gagnrýnd fyrir skort á samhengi innan námsins og einnig skort á tengslum milli námskeiða í kennaranámi og starfa kennara á vettvangi. Alþjóðlegar rannsóknir á kennaramenntun benda til þess að lykilatriði í árangursríkum undirbúningi fyrir kennarastarfið séu tækifæri t...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Authors: Gísladóttir, Berglind, Björnsdóttir, Amalía, Svanbjörnsdóttir, Birna María B., Engilbertsson, Guðmundur
Other Authors: Deild faggreinakennslu, Deild kennslu- og menntunarfræði, Kennaradeild, Háskólinn á Akureyri
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4193
https://doi.org/10.24270/netla.2023.5
Description
Summary:Kennaramenntun hefur víða verið gagnrýnd fyrir skort á samhengi innan námsins og einnig skort á tengslum milli námskeiða í kennaranámi og starfa kennara á vettvangi. Alþjóðlegar rannsóknir á kennaramenntun benda til þess að lykilatriði í árangursríkum undirbúningi fyrir kennarastarfið séu tækifæri til að læra og æfa aðferðir sem byggja á og tengjast raunverulegu starfi kennara í kennslustofu. Því leggja rannsakendur og stefnumótendur um allan heim í síauknum mæli áherslu á að móta aðferðir í kennaramenntun sem brúa bilið milli fræða og starfs. Tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða sýn nema á samhengi í grunnskólakennaranámi og tækifæri sem þeir fá til að tengja saman fræði og starf með árangursríkum hætti. Gögnum var safnað með spurningakönnun þar sem upplifun nema af ýmsum þáttum kennaranámsins var skoðuð og svöruðu 178 nemar á lokaári í grunnskólakennaranámi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Skoðað var hvort munur væri á sýn nema eftir háskólum, hvort þeir væru í launuðu starfsnámi eða hefðbundnu vettvangsnámi og hvort þeir væru í fimm ára samfelldu kennaranámi eða meistaranámi að lokinni bakkalárgráðu af öðru sviði. Niðurstöður gefa vísbendingar um að námið undirbúi kennaranema nokkuð heildstætt undir kennslu að námi loknu en gefa einnig til kynna að rými sé til úrbóta þegar kemur að tengslum fræða og starfs. Teacher education has often been criticised as fragmented and the lack of connection between courses taught in teacher education programs and the actual classroom practices of teachers in schools. This divide between teacher education and the reality of practice in schools is sometimes referred to as the “practice shock”, which is experienced by many novice teachers when they transition from student to teacher (Caspersen & Raaen,2014; Smith et al., 2013). This challenge of disconnection is by no means new and has persisted in teacher education (Schuck et al., 2018). Teacher educators have pointed toward scarce opportunities to practice, study, or rehearse actual teaching as a major ...