Nauðungarlyfjagjafir á geðdeildum Landspítala árin 2014-2018

INNGANGUR Þvinguð meðferð hefur verið gagnrýnd víða um heim og er nauðungarlyfjagjöf ein tegund þvingaðrar meðferðar en umfang nauðungarlyfjagjafa á Íslandi er lítið þekkt. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna umfang nauðungarlyfjagjafa á Landspítala, hvenær þær eru helst notaðar og hvort sé munur...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Thorstensen, Eyrún, Jónsson, Brynjólfur G. Guðrúnar, Bragadóttir, Helga
Other Authors: Geðþjónusta, Raunvísindadeild, Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, Önnur svið
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2023
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/4143
https://doi.org/10.17992/lbl.2023.04.738
Description
Summary:INNGANGUR Þvinguð meðferð hefur verið gagnrýnd víða um heim og er nauðungarlyfjagjöf ein tegund þvingaðrar meðferðar en umfang nauðungarlyfjagjafa á Íslandi er lítið þekkt. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna umfang nauðungarlyfjagjafa á Landspítala, hvenær þær eru helst notaðar og hvort sé munur milli sjúklinga sem fá nauðungarlyfjagjafir og þeirra sem ekki fá slíka meðferð. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Rannsóknin er afturskyggn og nýtti gögn úr sjúkraskrám með úrtaki allra inniliggjandi sjúklinga á geðdeildum Landspítala almanaksárin 2014-2018 með 4053 þátttakendum. Þátttakendum var skipt í tvo hópa, hóp 1 með sjúklingum sem fengu nauðungarlyf (n=400, 9,9%) og hóp 2 með sjúklingum sem ekki fengu nauðungarlyf (n=3653, 90,1%). NIÐURSTÖÐUR Heildarfjöldi nauðungarlyfjagjafa var 2438 talsins og um 1% heildarúrtaks fékk um helming allra nauðungarlyfja. Nauðungarlyfjagjafir voru helst gefnar yfir daginn á virkum dögum og seint um kvöld en ekki sást afgerandi munur milli mánaða. Þegar hóparnir voru skoðaðir sást að hlutfallslega fleiri karlar og sjúklingar með erlent ríkisfang voru í hópi 1 en hópi 2, en ekki sást afgerandi munur á aldursdreifingu milli hópanna. Þeir sem voru í hópi 1 voru með fleiri komur á Landspítala, og fleiri innlagnir og legudaga á geðdeildum Landspítala á sjúkling, en þeir í hópi 2. Hjá sjúklingum í hópi 1 voru geðrofsgreiningar (F20-29) og lyndisraskanir (F30-39) algengastar en í hópi 2 voru það fíknisjúkdómar (F10-19) og lyndisraskanir (F30-39). ÁLYKTUN Niðurstöður benda til ákveðinna áhættuþátta nauðungarlyfjagjafa varðandi lýðfræðilegar breytur sjúklinga, sjúkdómsgreiningar, nýtingu þjónustunnar og tímasetningar nauðungarlyfjagjafa. Nánari greining gæti nýst til þess að draga úr þvingaðri meðferð. Frekari rannsókna er þörf á þvingaðri meðferð á geðdeildum á Íslandi. INTRODUCTION: Coercion is considered controversial and is criticized around the world. Involuntary medication is one type of coercion, but the extent of its use in Iceland is not well known. The aim of this study is to shed light on ...