Þróun leikskóla á Íslandi : Samtal við skrif Jóns Torfa Jónassonar

Árið 2006 gaf dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor út bókina Frá gæslu til skóla: Um þróun leikskóla á Íslandi. Þar greindi hann þróun leikskólastigsins frá mörgum ólíkum sjónarhornum, fjallaði m.a. um stöðugleika orðræðunnar um leikskóla og um hvað umræður og deilur um leikskólastarf snerust. Í ritinu...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Netla
Main Authors: Einarsdóttir, Jóhanna, Hreinsdóttir, Anna Magnea
Other Authors: Deild kennslu- og menntunarfræði
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3864
https://doi.org/10.24270/serritnetla.2022.71
Description
Summary:Árið 2006 gaf dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor út bókina Frá gæslu til skóla: Um þróun leikskóla á Íslandi. Þar greindi hann þróun leikskólastigsins frá mörgum ólíkum sjónarhornum, fjallaði m.a. um stöðugleika orðræðunnar um leikskóla og um hvað umræður og deilur um leikskólastarf snerust. Í ritinu er farið yfir sögu leikskólans á Íslandi, formleg umgjörð hans og starfshættir skoðuð sem og menntun leikskólakennara. Þá fjallaði höfundur sérstaklega um bæði bóknámsrek og kerfisrek í skólakerfinu. Í þessari grein verður litið til baka og nokkur þeirra álitaefna sem Jón Torfi veltir upp skoðuð nú 16 árum síðar. Spurt er: Hvað hefur gerst í málefnum leikskólans á hálfum öðrum áratug? Á hvaða vegferð er íslenski leikskólinn? Sjónum er annars vegar beint að ytri áhrifaþáttum, svo sem samfélagsbreytingum liðinna ára, breytingum á leikskólakennaramenntuninni og opinberri stefnumótun í málefnum leikskólans. Hins vegar er litið til innra starfs leikskólans og leitast við að greina þau áhrif sem stefnumótunin hefur haft eða ekki haft á starfshætti leikskólans. Fjallað er um leikskólann sem gæslu eða skóla og færð rök fyrir að í leikskólum fari fram hvort tveggja; nám og umönnun. Bóknámsrek í leikskólum landsins er til umfjöllunar og velt vöngum yfir ástæðum þess að samfellt nám barna hefur ekki orðið að veruleika. Loks eru þær breytingar sem orðið hafa á viðhorfum til barna í kjölfar Sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins reifaðar. Notuð var skjalagreining og farið yfir opinber gögn um leikskólann á liðnum 16 árum. Meginniðurstaða greinarinnar er að sú þróun sem orðið hefur varðandi ytri umgjörð og innra starf íslenska leikskólans sé um margt til fyrirmyndar. Hins vegar virðast vera teikn á lofti um ósamræmi milli opinberrar stefnu og starfshátta sem benda til þess að huga þurfi betur að innleiðingu og eftirfylgni stefnumótunar. In 2006, Dr Jón Torfi Jónasson published Frá gæslu til skóla: Um þróun leikskóla á Íslandi [From Caregiving to School: On the Development of Preschools in Iceland], a book that analyses ...