Breytt viðhorf til sýklalyfjaávísana hjá íslenskum heimilis-og heilsugæslulæknum

Tilgangur: Sýklalyfjanotkun er ein helsta orsök sýklalyfjaónæmis hjá bakteríum og er mikilvægt að draga úr ónauðsynlegri notkun eins og hægt er. Sýklalyfjanotkun, og þá sérstaklega notkun breiðvirkra sýklalyfja, er mikil hér á landi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna sýklalyfjaávísanir árið 2014...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Matthíasdóttir, Anna Mjöll, Guðnason, Þórólfur, Halldórsson, Matthías, Haraldsson, Ásgeir, Kristinsson, Karl Gústaf
Other Authors: Læknadeild, Kvenna- og barnaþjónusta, Rannsóknaþjónusta, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2016
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3717
https://doi.org/10.17992/lbl.2016.01.61
Description
Summary:Tilgangur: Sýklalyfjanotkun er ein helsta orsök sýklalyfjaónæmis hjá bakteríum og er mikilvægt að draga úr ónauðsynlegri notkun eins og hægt er. Sýklalyfjanotkun, og þá sérstaklega notkun breiðvirkra sýklalyfja, er mikil hér á landi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna sýklalyfjaávísanir árið 2014 og bera saman við kannanir Landlæknisembættisins 1991 og 1995. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn og var upplýsinga aflað með spurningalistum. Þýðið samanstóð af öllum heimilis- og heilsugæslulæknum starfandi á Íslandi árin 1991 og 1995 ásamt öllum starfandi læknum á Íslandi í mars 2014. Spurt var um greiningu og meðferð einfaldrar þvagfærasýkingar, bráðrar miðeyrnabólgu og hálsbólgu. Notuð var fjölþátta lógistísk aðhvarfsgreining og marktæknismörk voru p≤0,05. Niðurstöður: Svarhlutfall var 85% og 93% árin 1991 og 1995 en 31% árið 2014. Hlutfall lækna sem töldu sig ávísa oftar en 10 sinnum að jafnaði á viku var 36% 1991, 32% 1995 en 21% 2014. Algengi trímetóprím-súlfa sem fyrsta lyfs við einfaldri þvagfærasýkingu fór úr 43% og 45% í fyrri könnunum í 8% árið 2014. Árið 2014 töldu heimilis- og heilsugæslulæknar sig ávísa sýklalyfi 87% sjaldnar við bráðri miðeyrnabólgu en 1991 (p Ályktanir: Talsverðar breytingar hafa orðið á ávísunarvenjum lækna síðastliðna tvo áratugi og eru þær nú oftar í samræmi við klínískar leiðbeiningar Embættis landlæknis. Lengi má gott bæta og er mikilvægt að hvetja enn frekar til betri notkunar sýklalyfja með það að markmiði að draga úr þróun sýklalyfjaónæmis hér á landi. Introduction: Antibiotic use is a leading cause of antibiotic resistance and it is terefore important to reduce unnecessary prescribing in Iceland where antibiotic use is relatively high. The purpose of tis study was to explore antibiotic prescribing practices among Icelandic physicians and compare te results wit results of comparable studies from 1991 and 1995 conducted by te Directorate of Healt, Iceland. Metods: A descriptive cross-sectional study was carried out among all general practitioners ...