Flugeldaslys á höfuðborgarsvæðinu 2010-2022. : Frá bráðamóttöku Landspítala

Ágrip INNGANGUR Flugeldanotkun almennings er mikil á Íslandi og hefur henni fylgt nokkur slysatíðni. Engar fyrri heildstæðar rannsóknir liggja fyrir á flugeldaslysum hér á landi. Markmið rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um umfang, orsakir og afleiðingar flugeldaslysa á höfuðborgarsvæðinu. EFNI...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Olafsson, Bjorn Vilhelm, Björnsson, Hjalti Már
Other Authors: Læknadeild, Lyflækninga- og bráðaþjónusta
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3707
https://doi.org/10.17992/lbl.2022.12.719
Description
Summary:Ágrip INNGANGUR Flugeldanotkun almennings er mikil á Íslandi og hefur henni fylgt nokkur slysatíðni. Engar fyrri heildstæðar rannsóknir liggja fyrir á flugeldaslysum hér á landi. Markmið rannsóknarinnar var að afla upplýsinga um umfang, orsakir og afleiðingar flugeldaslysa á höfuðborgarsvæðinu. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Gerð var textaleit í sjúkraskrám til að finna komur á bráðamóttöku Landspítala á tímabilinu desember 2010 til janúar 2022 af völdum flugeldaslysa. Voru sjúkraskrár yfirfarnar til að finna nánari lýsingar á tildrögum slyss og áverkum. NIÐURSTÖÐUR Á rannsóknartímabilinu leituðu 248 manns til Landspítala vegna flugeldaslysa, þar af 181 (73%) karl. Aldursbilið var frá 9 mánaða til 79 ára, alls 114 börn, þar af 12 á leikskólaaldri. Til viðbótar leituðu 54 á bráðamóttöku vegna hliðarslysa. Alls voru 96 (39%) slysanna rakin til gallaðra flugelda. Rakettur ollu flestum slysum, eða 56 (23%), þar á eftir skottertur 43 (17%) svo blys 32 (13%). Flugeldategund var óskráð í 62 (25%) tilfellum. Brunaáverka hlutu 157 einstaklingar, þar af 104 á höndum. Augnáverkar fundust hjá 67 einstaklingum og 97 einstaklingar hlutu opin sár. Inn á Landspítala lögðust 22 sjúklingar sem lágu samtals í 91 dag. Enginn lést en að minnsta kosti 13 hlutu varanlegt heilsutjón vegna flugeldaáverka. ÁLYKTANIR Síðasta áratug hefur 21 einstaklingur slasast og einn hlotið varanlegt heilsutjón að meðaltali vegna flugeldanotkunar á höfuðborgarsvæðinu ár hvert sé miðað við heil ár. Alls eru 73% slasaðra karlkyns, börn eru helmingur slasaðra og eitt barn á leikskólaaldri slasast venjulega um hver áramót. Efla þarf forvarnir gegn flugeldaslysum og íhuga að setja strangari reglur um notkun þeirra. BACKGROUND: Public use of fireworks is widespread in Iceland, and unfortunately associated with injuries. No prior comprehensive research has been done on firework accidents in Iceland. The goal of this study was to gather information about the extent, cause, and impact of firework accidents in the Reykjavik capital area. METHODS: Text search was ...