Loftmengun á Íslandi og áhrif hennar á heilsu manna - Yfirlitsgrein

Publisher Copyright: © 2019 Laeknafelag Islands. All rights reserved. Í þessari grein er fjallað um loftmengun á Íslandi og áhrif hennar á heilsu manna. Loftmengun má lýsa sem ástandi þar sem styrkur efna eða efnasambanda í andrúmslofti er orðinn það hár að hann veldur óæskilegum eða skaðlegum áhrif...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Gudmundsson, Gunnar, Finnbjornsdottir, Ragnhildur Gudrun, Johannsson, Thorsteinn, Rafnsson, Vilhjálmur
Other Authors: Læknadeild, Lyflækninga- og bráðaþjónusta, Heilbrigðisvísindasvið, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3694
https://doi.org/10.17992/lbl.2019.10.252
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2019 Laeknafelag Islands. All rights reserved. Í þessari grein er fjallað um loftmengun á Íslandi og áhrif hennar á heilsu manna. Loftmengun má lýsa sem ástandi þar sem styrkur efna eða efnasambanda í andrúmslofti er orðinn það hár að hann veldur óæskilegum eða skaðlegum áhrifum á heilsu almennings eða óæskilegum áhrifum á náttúru eða mannvirki. Loftmengun getur verið af manna völdum, svo sem vegna bruna jarðefnaeldsneytis, eða náttúruleg, til dæmis vegna eldgosa, frá jarðhitasvæðum og í foki jarðvegsefna. Loftmengun dregur úr lífsgæðum og lífslíkum manna. Áhrifum loftmengunar á heilsu manna má skipta annars vegar í bein heilsufarsleg áhrif þar sem loftmengunin veldur sjúkdómum og hins vegar óbein áhrif þar sem loftmengunin eykur einkenni undirliggjandi sjúkdóma. Heilsuverndarmörk eru skilgreind fyrir ákveðin loftmengunarefni í andrúmslofti. Þeim er ætlað að vera viðmið fyrir hvað telst skaðlaust fyrir einstaklinginn og eru sett til að tryggja heilsu manna til lengri tíma. Loftgæði utandyra hafa verið mæld reglubundið í Reykjavík síðan 1986. Fyrstu árin var eingöngu mælt svifryk á einni mælistöð sem þá var staðsett við Miklatorg. Með árunum hefur fjölgað þeim efnum sem mæld eru og bæst hafa við fleiri mælistöðvar. Loftgæði eru almennt talin mikil á Íslandi og er styrkur mengunarefna í andrúmslofti að jafnaði innan skilgreindra viðmiða. Þetta skýrist af margvíslegum þáttum eins og stærð landsins, legu þess og veðurfari. Náttúruhamfarir geta valdið loftmengun eins og sýndi sig í eldgosum síðustu ára. Rannsóknir hafa verið gerðar á tengslum loftmengunar við heilsufar Íslendinga og æskilegt er að fleiri rannsóknir verði framkvæmdar til að bæta þekkinguna á loftmengun á Íslandi enn frekar. This review is on air pollution in Iceland and how it affects human health. Air pollution can be described as a condition, where levels of compounds in the atmosphere are so high that it has undesirable or harmful effects on the general public or undesirable effects on the nature, flora and fauna, or ...