Áhrif hjartaendurhæfingar á líkamlega afkastagetu einstaklinga með hjartabilun

TILGANGUR Takmarkaðar upplýsingar er að finna um árangur hjartaendurhæfingar fyrir hjartabilaða einstaklinga á Íslandi. Markmið þessarar rannsóknar var að greina hvort hjartaendurhæfing (stig ll) á HL-stöðinni í Reykjavík skilaði aukinni líkamlegri afkastagetu (w/kg) á hámarksþolprófi í lok þjálfuna...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Hólmgeirsdóttir, Kristín Elísabet, Jonsson, Brynjolfur Gauti, Aspelund, Thor, Gudmundsson, Gunnar, Gudlaugsson, Janus
Other Authors: Raunvísindadeild, Læknadeild, Önnur svið
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2019
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3693
https://doi.org/10.17992/lbl.2019.11.256
Description
Summary:TILGANGUR Takmarkaðar upplýsingar er að finna um árangur hjartaendurhæfingar fyrir hjartabilaða einstaklinga á Íslandi. Markmið þessarar rannsóknar var að greina hvort hjartaendurhæfing (stig ll) á HL-stöðinni í Reykjavík skilaði aukinni líkamlegri afkastagetu (w/kg) á hámarksþolprófi í lok þjálfunartímabils. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Þetta er afturskyggn gagnarannsókn frá janúar 2010 til júní 2018. Þátttakendur voru sjúklingar með hjartabilun og einnig sjúklingar með útstreymisbrot hjarta 45% eða minna. Aldur og aðrar sjúkdómsgreiningar takmörkuðu ekki þátttöku. Upplýsingar um útstreymisbrot hjarta og þolpróf við upphaf og lok þjálfunartímabils þurftu að vera skráðar. Hlutfallsleg breyting á þolprófunum var metin með almennum línulegum líkönum fyrir endurteknar mælingar. Á rannsóknartímabili voru skráðir 112 þátttakendur, 27 luku ekki þjálfunartímabili og 9 voru með ófullnægjandi gögn. Greind voru gögn 76 þátttakenda á aldrinum 36-83 ára. NIÐURSTÖÐUR Líkamleg afkastageta þátttakenda jókst að meðaltali um 16% (p PURPOSE: Limited information is available on the effects of cardiac rehabilitation (CR) on individuals with heart failure (HF) in Iceland. The aim of this study was to analyze whether CR yielded increased physical capacity (PC) (w/kg) as measured by maximum exercise test at the end of the training period.MATERIALS AND METHODS: This is a retrospective data study from January 2010 to June 2018. Participants were patients with HF and also patients with ejection fraction (EF) 45% or less. Age and other diagnoses did not limit participation. Information about EF and exercise test at the beginning and end of the training period had to be recorded. Relative change in PC on these tests was evaluated by general linear models for repeated measurements. During the study period, 112 participants were enrolled, 27 did not finish the training period and 9 had incomplete data. Data from 76 participants aged 36-83 were analyzed.RESULTS: Participants' PC increased on average by 16% (p Peer reviewed