Náms- og atvinnuþátttaka ungs fólks á Íslandi eftir snemmíhlutun í geðrof

Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Einstaklingar greinast almennt ungir með geðrofssjúkdóma og þrátt fyrir meðferð hefur stór hluti viðvarandi einkenni sem leiða gjarnan til skertrar samfélagslegrar virkni og örorku. Markmið rannsóknarinnar var að kanna h...

Full description

Bibliographic Details
Main Authors: Gudbrandsdottir, Ragna Kristin, Ingimarsson, Oddur
Other Authors: Læknadeild, Geðþjónusta, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3644
https://doi.org/10.17992/lbl.2022.06.695
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. INNGANGUR Einstaklingar greinast almennt ungir með geðrofssjúkdóma og þrátt fyrir meðferð hefur stór hluti viðvarandi einkenni sem leiða gjarnan til skertrar samfélagslegrar virkni og örorku. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hversu hátt hlutfall ungra einstaklinga sem fengu snemmíhlutun í geðrof hér á landi árin 2010-2020 tók þátt í námi eða vinnu að endurhæfingu lokinni, ásamt því að kanna hvaða þættir hefðu forspárgildi um það. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Rannsóknin er afturskyggn ferilrannsókn sem byggði á upplýsingum úr sjúkraskrám allra sem útskrifuðust af Laugarásnum meðferðargeðdeild á árunum 2010-2020 eftir lengri en 6 mánaða endurhæfingu (n=144). Einþátta og fjölþátta tvíkosta aðhvarfsgreining var framkvæmd til að kanna hvaða breytur höfðu forspárgildi um náms- og atvinnuþátttöku að endurhæfingu lokinni. NIÐURSTÖÐUR 75% þjónustuþega voru atvinnulausir við innritun sem bendir til hrakandi samfélagslegrar virkni fyrir inngrip í fyrsta geðrof. Við útskrift var rúmur helmingur þjónustuþega í vinnu eða námi. Starfsendurhæfing á Laugarásnum reyndist vera sá þáttur sem hafði mest jákvætt forspárgildi um náms- og atvinnuþátttöku við útskrift. Aðrir helstu forspárþættir voru þeir sem endurspegluðu alvarlegan geðrofssjúkdóm og samfélagslega virkni fyrir innskrift. Meirihluti þjónustuþega (66%) hafði sögu um kannabisneyslu sem reyndist einnig hafa neikvætt forspárgildi um náms- og atvinnuþátttöku við útskrift. ÁLYKTANIR Ljóst er að betur má ef duga skal ef auka á samfélagslega virkni ungs fólks á Íslandi eftir fyrsta geðrof. Mikilvægt er að tryggja skilvirka starfsendurhæfingu á Laugarásnum þar sem starfsendurhæfing var einn fárra þátta sem hafði forspárgildi um náms- og atvinnuþátttöku við útskrift sem hægt er að hafa áhrif á í endurhæfingunni. BACKGROUND: Because of the early onset and disabling symptoms of schizophrenia spectrum disorders many individuals with these disorders are unemployed from an early age and disability pension rates are ...