Neyslutíðni matvæla eða bætiefna og fylgni við styrk langra ómega-3 fitusýra í blóðvökva barnshafandi kvenna

Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. TILGANGUR Fyrri rannsóknir benda til að hluti barnshafandi kvenna á Íslandi uppfylli ekki ráðlögð viðmið fyrir neyslu langra ómega-3 fitusýra, sem eru taldar mikilvægar fyrir fósturþroska. Markmið rannsóknarinnar var að meta neysl...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Tryggvadóttir, Ellen Alma, Halldórsson, Þórhallur Ingi, Birgisdóttir, Bryndís Eva, Hrólfsdóttir, Laufey, Landberg, Rikard, Hreiðarsdóttir, Ingibjörg Th, Harðardóttir, Hildur, Gunnarsdóttir, Ingibjörg
Other Authors: Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda, Matvæla- og næringarfræðideild, Önnur svið, Kvenna- og barnaþjónusta, Læknadeild, Heilbrigðisvísindasvið, Háskólinn á Akureyri, Landspítali
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3641
https://doi.org/10.17992/LBL.2022.05.691
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. TILGANGUR Fyrri rannsóknir benda til að hluti barnshafandi kvenna á Íslandi uppfylli ekki ráðlögð viðmið fyrir neyslu langra ómega-3 fitusýra, sem eru taldar mikilvægar fyrir fósturþroska. Markmið rannsóknarinnar var að meta neyslutíðni barnshafandi kvenna á fæðutegundum og bætiefnum sem innihalda langar fjölómettaðar ómega-3 fitusýrur og kanna fylgni við styrk þeirra í blóðvökva. AÐFERÐIR Þátttakendur voru 853 barnshafandi konur sem mættu í fósturgreiningu við 11.-14. viku meðgöngu. Upplýsingar um fæðuval, notkun ómega-3 bætiefna sem innihalda eikósapentaensýru (EPA) og dókósahexaensýru (DHA) og bakgrunn þátttakenda var aflað með fæðutíðnispurningalista. Blóðsýni voru tekin til mælinga á styrk fitusýra í blóðvökva. Fylgni var metin með Spearman-fylgnistuðli. NIÐURSTÖÐUR Miðgildi neyslu á mögrum fiski var 1,3 skipti í viku og á feitum fiski eitt skipti í mánuði. Um 50% tóku ómega-3 bætiefni daglega eða oftar. Hærri heildartíðni fiskneyslu og notkun bætiefna með ómega-3 fitusýrum endurspeglaðist í hærri heildarstyrk þeirra í blóðvökva (r=0,37, p ÁLYKTANIR Neysla matvæla og bætiefna sem innihalda ómega-3 fitusýrur endurspeglaðist í styrk þeirra í blóðvökva, að undanskildu íslensku meðgöngu-fjölvítamíni. Helstu niðurstöður okkar eru að rétt rúmlega þriðjungur barnshafandi kvenna borðaði fisk að minnsta kosti tvisvar sinnum í viku í samræmi við ráðleggingar. Um það bil helmingur kvennanna notaði einhver bætiefni með ómega-3 fitusýrum daglega. INTRODUCTION: Long-chain polyunsaturated omega-3 fatty acids are considered important for fetal development, but previous studies suggest suboptimal intake in part of pregnant women in Iceland. The study aim was to evaluate intake of food and supplements containing omega-3 fatty acids, among pregnant women in Iceland and correlations to fatty acid composition in plasma. MATERIALS AND METHODS: Subjects were 853 pregnant women attending their 11-14 weeks ultrasound appointment. Information on intake of food ...