Lækkandi tíðni þungburafæðinga á Íslandi – skoðuð með hliðsjón af breyttu verklagi um framköllun fæðinga

Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. TILGANGUR Þekkt er að konur sem ganga fram yfir áætlaðan fæðingardag og konur með sykursýki eru líklegri til að fæða þungbura en aðrar konur. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni þungburafæðinga á Íslandi með hliðsjón af fjö...

Full description

Bibliographic Details
Published in:Læknablaðið
Main Authors: Gunnarsdóttir, Jóhanna, Ragnarsdottir, Jonina Run, Sigurðardóttir, Matthildur, Einarsdóttir, Kristjana
Other Authors: Læknadeild, Önnur svið, Heilbrigðisvísindasvið
Format: Article in Journal/Newspaper
Language:Icelandic
Published: 2022
Subjects:
Online Access:https://hdl.handle.net/20.500.11815/3636
https://doi.org/10.17992/lbl.2022.04.685
Description
Summary:Publisher Copyright: © 2022 Laeknafelag Islands. All rights reserved. TILGANGUR Þekkt er að konur sem ganga fram yfir áætlaðan fæðingardag og konur með sykursýki eru líklegri til að fæða þungbura en aðrar konur. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni þungburafæðinga á Íslandi með hliðsjón af fjölgun framkallana fæðinga. Tíðni þungburafæðinga var skoðuð eftir meðgöngulengd og hættan á þungburafæðingum við framköllun fæðinga borin saman við biðmeðferð. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Gögn Fæðingaskrár frá 92.424 fæðingum einbura á tímabilinu 1997 til 2018 voru nýtt í þessa ferilrannsókn. Barn með fæðingarþyngd yfir fjórum og hálfu kg var skilgreint sem þungburi. Meðaltíðni þungburafæðinga var reiknuð fyrir þrjú tímabil, 1997-2004, 2005-2011 og 2012-2018, lagskipt eftir meðgöngulengd. Hlutfallsleg áhættulækkun þungburafæðinga var reiknuð með tvíkosta aðhvarfsgreiningu og seinni tvö tímabilin borin saman við það fyrsta. Hættan á þungburafæðingu við framköllun fæðinga miðað við biðmeðferð var einnig metin. Hlutfallsleg áhættulækkun var reiknuð og leiðrétt fyrir sykursýki. NIÐURSTÖÐUR Fjöldi þungbura sem fæddust á rannsóknartímabilinu var 5110 og af þeim áttu einungis 313 mæður með sykursýki. Tíðni þungburafæðinga var 6,5% tímabilið 1997-2004 en 4,6% 2012-2018. Hlutfallsleg áhættulækkun þungburafæðinga yfir rannsóknartímann sást meðal fæðinga frá og með áætluðum fæðingardegi. Þegar framköllun fæðinga var borin saman við biðmeðferð mátti sjá áhættulækkun á þungburafæðingum, en áhrifin voru til staðar jafnvel þó leiðrétt væri fyrir sykursýki. ÁLYKTANIR Tíðni þungburafæðinga fór lækkandi síðastliðna tvo áratugi, en aðeins lítill hluti þungburanna átti mæður með sykursýki. Framköllun fæðinga minnkaði líkur á þungburafæðingum en slík verndandi áhrif virtust óháð sykursýkigreiningu. AIM: Diabetes and prolonged pregnancy are risk factors of macrosomia. The aim was to explore the relationship between the increased rate of labor induction and macrosomia in Iceland. Changes in the incidence proportion of macrosomia was estimated by ...